02.01.2023

Arion banki með mestu veltu á hluta­bréfa- og skulda­bréfa­markaði ár­ið 2022

Á árinu 2022 var Arion banki með hæstu hlutdeild allra markaðsaðila í miðlun hlutabréfa og skuldabréfa í kauphöll Nasdaq Iceland. Á hlutabréfamarkaði var velta bankans 445 milljarðar króna sem samsvarar 21,5% hlutdeild og er það sjöunda árið í röð sem Arion banki er með mestu hlutabréfaveltu allra markaðsaðila í kauphöll Nasdaq Iceland. Á skuldabréfamarkaði var velta bankans 518 milljarðar króna og hlutdeildin 19,8%, sem var jafnframt mesta skuldabréfavelta allra markaðaðila á Nasdaq Iceland.

Arion banki var einnig með hæstu hlutdeild markaðsaðila á First North markaðinum eða 35,4%.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira