15.04.2026

Arion banki ráð­gef­andi í kaup­um Garra á ráð­andi hlut í Mekka Wines&­Spi­rits

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var ráðgjafi Garra ehf. í kaupum félagsins á 80% hlut í Mekka Wines&Spirits hf.

Garri var stofnað árið 1973 og hefur byggt upp öfluga stöðu á fyrirtækja- og veitingahúsamarkaði með sölu á matvöru, umbúðum og hreinlætislausnum.

Mekka hefur verið starfandi frá árinu 1995 og hefur um árabil verið ein stærsta áfengisheildverslun landsins.

Kaupin marka samruna tveggja rótgróinna félaga á heildsölumarkaði og eru mikilvægur áfangi í áframhaldandi uppbyggingu og vexti starfseminnar.

Við óskum hluthöfum Garra og Mekka Wines&Spirits innilega til hamingju með viðskiptin og erum fullviss um að samstarfið muni styrkja stöðu beggja félaga og skapa aukin tækifæri til vaxtar og þróunar til framtíðar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira