01.03.2022

Arion banki stærst­ur á hluta­bréfa­markaði sjötta ár­ið í röð

Arion banki var með mestu hlutdeild markaðsaðila með hlutabréf í Kauphöll Íslands árið 2021. Þetta kemur fram í gögnum frá Nasdaq Iceland. Arion banki velti hlutabréfum fyrir tæplega 455 milljarða króna á árinu sem samsvarar 21,5% hlutdeild og jókst veltan um 74% á milli ára. Þetta er sjötta árið í röð sem Arion banki er með mestu hlutabréfaveltu í kauphöll.

Arion banki var einnig með mestu hlutdeildina á First North markaðinum eða 46,2%.

Velta Arion banka með skuldabréf í Kauphöllinni var um 400 milljarðar króna á árinu 2021 sem samsvarar 17,2% hlutdeild sem var sú næst mesta á meðal markaðsaðila.

Í heildina var Arion banki var með mestu samanlögðu hlutdeild markaðsaðila í verðbréfaviðskiptum í kauphöllinni árið 2021.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira