15.02.2023

Björn Björns­son ráð­inn framkvæmda­stjóri upplýsinga­tækni­sviðs Arion banka

Björn Björnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka og mun hefja störf þann 6. mars næstkomandi.

Björn kemur til Arion frá Boston Consulting Group (BCG). Hjá BCG hefur Björn meðal annars starfað með mörgum af stærstu fjármálafyrirtækjum Ástralíu og Norðurlanda að stefnumarkandi verkefnum í upplýsingatækni. Áður en Björn hóf störf hjá BCG vann hann sem stjórnandi og sérfræðingur hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum, m.a. sem framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Byr.

Björn er með BS próf í tölvunarfræði og MS próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og MBA próf frá Melbourne Business School. Björn er giftur Hrefnu Þorbjörgu Hákonardóttur sjúkraþjálfara og eiga þau tvö börn.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira