23.06.2023

Erna Björg Sverr­is­dóttir aðal­hag­fræðingur Arion banka valin hag­fræðingur ársins

Félag viðskipta- og hagfræðinga (FVH) útnefndi nýverið Ernu Björgu Sverrisdóttur, aðalhagfræðing Arion banka, sem hagfræðing ársins 2023. Það var forseti Íslands sem afhenti Ernu Björgu verðlaunin.

Það var einróma mat dómnefndar að velja Ernu Björgu vegna starfa hennar fyrir Arion banka. Að mati dómnefndarinnar hefur Ernu tekist vel að nálgast hagfræði á fróðlegan og skemmtilegan hátt á opinberum vettvangi, í viðtölum og með greinaskrifum. Einnig sé hún óhrædd við að synda á móti straumnum með sínum skoðunum, þori að spyrja gagnrýninna spurninga og sé flott fyrirmynd fyrir ungt fólk sem leggur stund á nám í viðskipta- og hagfræðideildum háskóla landsins.

Við gætum ekki verið meira sammála og óskum Ernu Björgu til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira