14.07.2023

F5 eign­ast Fornu­búð­ir

F5 eignarhaldsfélag er nýr eigandi Fasteignafélagsins Fornubúða hf. Stærsti hluthafi F5 eignarhaldsfélags er Strontín, sem er í endanlegri eigu Þórðar Kolbeinssonar. Strontín var með hæsta tilboð í opnu söluferli sem hófst undir lok síðasta árs. Nýlega var gengið frá viðskiptunum og var heildarkaupverð 4,8 milljarðar króna.

Helsta eign Fasteignafélagsins Fornubúða er húsnæði að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði sem er 10.319 fermetrar að stærð. Húsnæðið er í fullri útleigu en stærsti einstaki leigutaki félagsins er Hafrannsóknarstofnun Íslands. Þá eiga Fornubúðir einnig ónýttan byggingarrétt á sömu lóð.

Arion banki var ráðgjafi F5 eignarhaldsfélags í kaupunum.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira