26.11.2020

Frum­tak sel­ur 11% hlut í Control­ant fyrir tæpa tvo millj­arða

Frumtak, samlagssjóður í eigu NSA, lífeyrissjóða og banka, hefur selt 11,33% hlut sjóðsins í Controlant, upplýsingatæknifyrirtæki sem þróað hefur hugbúnaðarlausnir með sérstaka áherslu á lyfjaiðnaðinn. Fjárfestahópur núverandi hluthafa í Controlant, leiddur af Investco ehf., keypti hlutinn, en hópurinn átti hæsta tilboðið í söluferli sem fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með. Alls bárust á annan tug tilboða í eignarhlutinn, að hluta eða í heild, frá innlendum og erlendum aðilum. Söluandvirði hlutarins nam tæpum tveimur milljörðum króna.

Ástæða sölunnar er sú að Frumtak, fyrsti sjóður Frumtak Ventures, er að ljúka starfstíma sínum og er skuldbundinn til að selja eignir sínar. Frumtak Ventures mun eftir viðskiptin áfram fara með stóran hlut í Controlant hf. í gegnum sjóðinn Frumtak 2.

Controlant verður í lykilhlutverki í dreifingu á bóluefni gegn COVID-19. Viðskiptavinir félagsins stefna að því að dreifa bóluefni fyrir lok árs og á fyrri hluta næsta árs, en Controlant hefur þróað rauntímalausnir til að fylgjast með hitastigi og staðsetningu á viðkvæmum vörum í flutningi og geymslu.

„Við hjá Frumtaki höfum verið afskaplega stolt af því að fylgja félaginu í gegnum ótrúlegan vöxt á undanförnum árum. Stofnendur, stjórnendur og starfsmenn Controlant hafa unnið þrekvirki og félagið er leiðandi á sínu sviði í heiminum,“ segir Svana Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Frumtaks.

„Það hefur verið gaman að starfa með Controlant og hluthöfum þess síðustu misseri og fylgjast með sókn félagsins erlendis. Þá er gott að sjá árangur vel heppnaðra sprotafjárfestinga innlendra stofnanafjárfesta og þann meðbyr sem Controlant hefur hjá fjárfestum, jafnt innlendum sem erlendum. Við hlökkum til að styðja áfram við félagið á komandi árum og fylgjast með því spennandi starfi sem þar er unnið,“ segir Lýður Þór Þorgeirsson forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira