17.08.2023

Hluta­bréfa­viðskipti hag­stæð­ust hjá Arion þeg­ar fjárfest er undir 250 þús­und krón­um

Í síðasta tölublaði Viðskiptablaðs voru þóknanir fjármálafyrirtækja vegna hlutabréfaviðskipta bornar saman. Samanburður Viðskiptablaðsins leiddi í ljós að hlutabréfakaup eru hagstæðust hjá Arion banka þegar fjárfest er í gegnum netbanka eða app fyrir minna en 250 þúsund krónur.

Ástæðan er að Arion banki tekur ekki lágmarksþóknun þegar fjárfest er í hlutabréfum í gegnum netbanka eða app fyrir 20.000 krónur eða meira. Þetta fyrirkomulag var tekið upp þegar bankinn kynnti til leiks hlutabréfaviðskipti í appinu fyrir um tveimur árum. Þá var ákveðið að hafa aðeins hlutfallslegt gjald auk 300 króna afgreiðslugjalds með það fyrir augum að gera verðbréfaviðskipti að vænlegum kosti þrátt fyrir að fjárfest væri fyrir lágar upphæðir.

Það er ánægjulegt hve vel viðskiptavinir okkar hafa tekið þessari nálgun og stafrænu lausnunum okkar þegar kemur að hlutabréfaviðskiptum.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira