15.11.2023

Kon­ur að sækja í sig veðr­ið í verð­bréfa­eign – enn er þó langt í land

Á Reykjavík Global Forum, alþjóðlegri ráðstefnu kvenleiðtoga sem haldin er í Hörpu og þar sem Arion banki er einn af bakhjörlum, hefur bankinn lagt áherslu á umræðu um ójafna skiptingu fjármagns milli kynja og mikilvægi þess að þar verði breyting á.

Í þessu sambandi er vert að vekja sérstaka athygli á þeirri staðreynd að konur eiga einungis um 30-40% fjármagns að jafnaði á móti 60-70% eign karla, eftir því hvort horft er til eignar í viðbótar-lífeyrissparnaði, verðbréfum eða sjóðum. Þetta sýna gögn bankans og dótturfélaga sem og kauphallarinnar. Að teknu tilliti til markaðshlutdeildar bankans má reikna með að gögn hans gefi góða mynd af skiptingu fjármagns í landinu almennt.

Skipting sem þessi er ekki náttúrulögmál en engu að síður virðist hún birtast strax í frumbernsku því sömu kynjuðu skiptingu má sjá hjá börnum undir tveggja ára aldri. Þegar aðeins er horft til barna undir tveggja ára og þeirrar verðbréfaeignar og innlána sem þau eru skráð fyrir hjá bankanum, þá eru stúlkur aðeins skráðar fyrir um 40% þeirrar upphæðar en drengir um 60%. Erfitt er að átta sig á hvað býr að baki því viðhorfi fullorðinna sem speglast í þessum mun.

Öllu jákvæðara er að fjármagnstekjur kvenna, sérstaklega kvenna í yngri kantinum, eru að aukast samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands. Þessi framvinda helst í hendur við þann aukna áhuga kvenna á fjárfestingum sem vart verður hjá Arion banka.

Jafnframt má greina þá breytingu, skv. gögnum bankans, að konur hafa sótt í sig veðrið varðandi verðbréfaeign sem er ánægjuleg þróun. Engu að síður er skiptingin enn 70/30, körlum í hag, og með sama áframhaldi eru um 70 ár í að konur og karlar eigi jafnmikið í verðbréfum.

Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion banka:

„Við höfum lagt okkur fram um að greina og skilja mun á milli kynja varðandi eignastöðu og fjárfestingar. Óhætt er að segja að ýmislegt hafi komið okkur á óvart í þeirri vinnu en annað ekki. Víða má sjá jákvæða þróun en almennt má segja að þróunin þurfi að vera mun hraðari því það er lykilatriði fyrir farsæla og jafna þróun samfélagsins að öll kyn taki þátt í fjármögnun þess með því að fjárfesta og hafa þannig jöfn áhrif og jafna rödd í þróun samfélagsins. Þátttaka í fjármálamarkaði, ásamt nauðsynlegu fjármálalæsi, er mikilvæg leið til að hafa áhrif í samfélaginu, samfara því að byggja upp eigin fjárhagslega framtíð. Við viljum leggja okkar af mörkum til að jafna þennan mun og þátttöku kynjanna á íslenskum fjármálamarkaði.“


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira