27.11.2023

Kynntu þér greiðslu­þak og lækk­aðu greiðslu­byrð­ina á íbúða­lán­inu þínu

Það hafa fáir farið varhluta af breyttu landslagi í efnahagsmálum á Íslandi og há verðbólga og hækkandi stýrivextir hafa sett strik í heimilisbókhald margra fjölskyldna. Þeir sem eru með óverðtryggð íbúðalán með breytilega vexti hafa fundið hvað mest fyrir hækkun á greiðslubyrði. Eins standa þeir sem hafa verið með fasta vexti nú frammi fyrir því að afborganir munu hækka mikið þegar fastvaxtatímabili lýkur.

Til að koma til móts við þetta breytta landslag og lækka mánaðarlegar greiðslur íbúðalána bjóðum við nú upp á tímabundið greiðsluþak íbúðalána.

Viðskiptavinir geta óskað eftir því að greiða fasta mánaðarlega fjárhæð sem er lægri en fjárhæð afborgunar samkvæmt skilmálum lánsins. Sá hluti greiðslunnar sem frestast færist á höfuðstól lánsins sem hækkar sem því nemur. Viðskiptavinir geta lækkað mánaðarlega greiðslu um 1, 2, 3 eða 4 prósentustig þeirra vaxta sem lánið ber í dag. Sú upphæð sem færist á höfuðstól lánsins í lok tímabilsins getur hækkað eða lækkað eftir því hver vaxtaþróun tímabilsins er. Greiðsluþak gildir í 12 mánuði og ætti að leiða til hærri greiðslubyrði lánsins að tímabilinu loknu.

Sem dæmi má nefna íbúðalán sem ber 10% vexti á ári. Í slíku tilviki er mest hægt að óska eftir því að mánaðarleg greiðsla miðist við 6% vexti næstu 12 mánuði. Færast þá vextir umfram 6% á höfuðstól lánsins að 12 mánuðum liðnum.

Með tilkomu þessa valkosts standa nú til boða fleiri valmöguleikar til þess að lækka greiðslubyrði lána. Greiðsluþak gæti hentað þeim sem hafa hug á að vera áfram með óverðtryggt lán en vilja engu að síður lækka greiðslubyrði tímabundið án þess að endurfjármagna lánið.

Við mælum eindregið með því að viðskiptavinir okkar hafi samband við starfsfólk okkar og fari yfir íbúðalánin sín og kanni hvort að greiðsluþak sé valkostur sem henti þeim.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira