06.05.2023

Lífeyris­bók Arion banka er nú að­gengi­leg á vef bankans

Innan Arion banka hefur safnast mikil þekking á lífeyrismálum, einkum hvað varðar almennan rekstur lífeyrissjóða, eignastýringu og áhættustýringu. Í dag eru fimm lífeyris- og séreignarsjóðir í rekstri hjá bankanum. Gaf bankinn nýverið út bók um lífeyrismál sem byggir á þessari þekkingu og reynslu. Bókin er nú aðgengileg á rafrænu formi á vef bankans.

Lífeyrisbókin er fyrst og fremst ætluð stjórnum og starfsfólki lífeyrissjóða en einnig öllum þeim sem vilja kynna sér þetta mikilvæga málefni. Í bókinni er fjallað um íslenska lífeyriskerfið, hlutverk stjórna, eignastýringu, ábyrgar fjárfestingar og umboðsskyldu, áhættustýringu og eftirlit og aðra þætti í rekstri lífeyrissjóða.

Í ritnefnd voru Guðný Helga Lárusdóttir, sérfræðingur í rekstri lífeyrissjóða og verðbréfa hjá Arion banka, sem jafnframt er ritstjóri bókarinnar, Hjörleifur Arnar Waagfjörð, forstöðumaður eignastýringar fagfjárfesta hjá Arion banka og formaður ritnefndar, Jóhann Möller, framkvæmdastjóri markaða hjá Arion banka og Sigrún Hauksdóttir, forstöðumaður reksturs lífeyrissjóða og verðbréfa hjá Arion banka. Jafnframt var leitað til ytri fagaðila og stjórnarformanna, stjórnenda og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða til að rita greinar í bókina

Við vonum að bókin komi stjórnum og starfsfólki lífeyrissjóða að góðum notum sem og öllum þeim sem vilja fræðast um starfsemi lífeyrissjóða.

Bókin er aðgengileg hér.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira