12.06.2022

Niður­stöður úr al­mennu hluta­fjárút­boði Nova Klúbbsins hf.

  • Rúmlega 5.000 áskriftir bárust fyrir um 12 milljarða króna

  • Tvöföld eftirspurn, þar af þreföld eftirspurn í áskriftarbók A

  • Vegna umframeftirspurnar var ákveðið að stækka útboðið sem nemur 20%

  • Heildarvirði seldra hluta nam tæplega 8,7 milljörðum króna

Almennu hlutafjárútboði Nova Klúbbsins hf. lauk kl. 16:00 þann 10. júní. Alls bárust rúmlega 5.000 áskriftir að andvirði um 12 ma.kr. sem samsvarar tæplega tvöfaldri eftirspurn, sé miðað við grunnstærð útboðsins. Tæplega þreföld eftirspurn var eftir þeim hlutum sem boðnir voru í áskriftarbók A miðað við grunnstærð útboðsins. Eftirspurn var eftir ríflega öllum hlutum sem boðnir voru í áskriftarbók B. Endanlegt útboðsgengi í báðum áskriftarbókum nam 5,11 krónum á hlut.

Til að mæta áhuga fjárfesta hafa seljendur ákveðið að stækka útboðið sem nemur um 20% í þágu áskriftarbókar A.

Seldir hlutir í áskriftarbók A nema 779.225.168 að söluandvirði um 4 milljarðar króna. Við úthlutun voru áskriftir almennt skertar um 51% en þó þannig að fylgt var þeim viðmiðum gagnvart áskriftum starfsmanna og viðskiptavina Nova líkt og stefnt var að samkvæmt skilmálum útboðsins.

Seldir hlutir í áskriftarbók B nema 920.902.471 að söluandvirði um 4,7 milljarðar króna. Áskriftir fjárfesta í áskriftarbók B voru skertar um 12%. Heildarfjöldi hluta sem eru seldir hlutir í útboðinu námu alls 1.700.127.639 og heildarsöluandvirði hlutafjárútboðsins nemur um 8,7 milljörðum króna.

Hugh Short, stjórnarformaður Nova Klúbbsins:

„Nú er vel heppnuðu hlutafjárútboði lokið og við fögnum áhuga fjárfesta á félaginu. Í apríl síðastliðnum fór fram hlutafjáraukning þar sem sterkur hópur fjárfesta kom að borðinu. Nú hefur hluthafahópur félagsins styrkst enn frekar með aðkomu almennings og fjölda öflugra stofnanafjárfesta. Við lítum björtum augum til framtíðar og hlökkum til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu félagsins í samstarfi við nýja hluthafa.“

Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova Klúbbsins:

„Við erum hæstánægð að fá að bjóða velkomna um 5.000 manns til að taka þátt í að stuðla að áframhaldandi uppbyggingu stærsta skemmtistaðar í heimi. Þá er sérstaklega ánægjulegt að sjá þátttöku núverandi viðskiptavina en um 1.500 þeirra tóku þátt í útboðinu. Nú tekur við næsti kafli í sögu Nova sem skráð félag og erum við spennt að hringja bjöllunni þann 21. júní næstkomandi.“

Fjárfestum verður tilkynnt um úthlutanir í útboðinu eigi síðar en fyrir lok dags mánudaginn 13. júní. Gjalddagi áskriftarloforða fjárfesta er 16. júní næstkomandi og er ráðgert að afhending hinna nýju hluta til fjárfesta fari fram þann 20. júní.
Stefnt er að því að viðskipti með hina nýju hluti hefjist á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. þann 21. júní næstkomandi, en Nasdaq Iceland hf. hefur samþykkt umsókn félagsins um töku hlutabréfanna til viðskipta, háð því að félagið uppfylli skilyrði reglna fyrir útgefendur hlutabréfa á Nasdaq Iceland hf. um dreifingu hlutafjár fyrir fyrsta viðskiptadag.

Arion banki hafði umsjón með hlutafjárútboðinu.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira