13.10.2023

Ný hagspá: Hag­kerfi í reip­togi

Ný hagspá Arion banka sem birt er í dag gerir ráð fyrir að hagvöxtur verði 4,5% í ár, sem er nokkur lækkun frá okkar síðustu spá í maí. Stærri breyting er þó fólgin í samsetningu hagvaxtarins. Í stað eftirspurnardrifins hagvaxtar er nú útlit fyrir að utanríkisverslun, með ferðaþjónustuna fremsta í flokki, dragi vagninn í ár.

Á næsta ári hægir þó verulega á hagvexti og verður hann 1,6%. Munar miklu um áframhaldandi hægagang einkaneyslu ásamt samdrætti í fjárfestingu. Ágætar horfur í útflutningsgreinum, sem nær einnig til annarra greina en ferðaþjónustu, vega þó á móti. Við spáum að verðbólga hjaðni á næsta ári og vextir taki þá að lækka. Þá sjáum við fram á að hagkerfið taki nokkuð hratt við sér og hagvöxtur verði um og yfir 3% á ári 2025 til 2026. Þetta er meiri hagvöxtur en við höfum vanalega spáð svo langt fram í tímann en mikil fólksfjölgun á vinnualdri skapar forsendur fyrir talsverðum hagvexti, jafnvel meiri en í spánni.

Eins og ævinlega er óvissan mikil og það kristallast í yfirskriftinni „Hagkerfi í reiptogi“. Átök sterkra krafta eru óvenju sýnileg um þessar mundir. Þau eru ef til vill greinilegust í bröttu vaxtahækkanaferli Seðlabankans, sem er ætlað að slá á mikla eftirspurn og verðbólgu. Einn stærsti áhættuþátturinn næstu misseri er að neikvæð áhrif vaxtahækkana á fjárfestingu, hagvöxt og atvinnuleysi verði meiri en við reiknum með. Þrátt fyrir þá hættu er mögulegt að sigla milli skers og báru í baráttunni við verðbólgu, einkum ef aðgerðir á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum stuðla að auknum verðstöðugleika.

Efnahagshorfur 2023-2026


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira