15.05.2023

Ný hagspá: Kraft­urinn í fjöld­anum

Ný hagspá Arion banka, sem er birt í dag, gerir ráð fyrir að áfram muni blása byrlega í segl þjóðarskútunnar og eru horfur á meiri hagvexti í ár en áður var talið. Mikil fólksfjölgun, hraðari uppsveifla ferðaþjónustunnar en gert var ráð fyrir í síðustu spá og öflug fjárfesting, studd af lágum raunvöxtum síðustu misseri, leiðir að okkar mati til 5,1% hagvaxtar í ár. Með öðrum orðum, fjölgun íbúa og ferðamanna drífur áfram hagvöxt. Á næsta ári er hins vegar útlit fyrir að verulega hægi á með 1,6% hagvexti, m.a. vegna vaxtahækkana, en að hagkerfið leiti í langtímahagvöxt árið 2025.

Stærsta vandamálið sem efnahagslífið glímir við um þessar mundir er tæp 10% verðbólga sem hefur ítrekað reynst þrálátari en áður var talið. Við gerum engu að síður ráð fyrir að verðbólgan hjaðni næstu misseri en það mun kosta frekari vaxtahækkanir.

Hagkerfið er almennt í góðu ásigkomulagi og við erum bjartsýn á framtíðarhorfur efnahagslífsins. Þar skipta metnaðarfull áform í fiskeldi, orkuskiptum, ýmsum tæknigreinum, lyfjaiðnaði og fleiri atvinnugreinum miklu máli. Spáin er þó farfærin hvað þessi áform varðar en gangi þau eftir eru líkur á að hagvöxtur geti verið sögulega mikill næstu ár.

Á hinn bóginn getur ýmislegt þróast til verri vegar. Horfur eru á hægagangi, og jafnvel niðursveiflu, í okkar viðskiptalöndum sem getur smitast hingað og vaxtahækkanir um heim allan, þ.m.t. á Íslandi, gætu bitnað meira á raunhagkerfinu en við gerum ráð fyrir. Þá er ótalin reynsla okkar af heimsfaraldri og stríðsátökum síðustu ára: Ýmsir ófyrirséðir atburðir geta hæglega sett strik í reikninginn.

Efnahagshorfur 2023-2025

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira