11.04.2022

Nýr reglu­vörður og ný­ir for­stöðu­menn hjá Arion banka

Andrés Fjeldsted er nýr regluvörður Arion banka og tekur hann við af Hákoni Má Péturssyni sem hefur gegnt starfi regluvarðar bankans frá árinu 2011. Andrés Fjeldsted hefur starfað við lögfræðiráðgjöf hjá Arion banka frá árinu 2015. Helstu verkefni hans hafa tengst eignastýringu bankans, yfirstjórn og nú síðast hefur hann verið ritari stjórnar bankans. Andrés er með mag. jur. gráðu frá Háskóla Íslands og með BA gráðu í hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði frá University of Essex.

Elísabet Árnadóttir hefur verið ráðin forstöðumaður lítilla og meðalstórra fyrirtækja á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði. Hún tekur við af Kristjáni Einarssyni sem sagði starfi sínu lausu hjá bankanum. Elísabet hóf störf hjá Arion banka árið 2000 og hefur sinnt þar ýmsum störfum, m.a. verið útibússtjóri, viðskiptastjóri fyrirtækja, fyrirtækjaráðgjafi og þjónusturáðgjafi. Elísabet er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og með próf í verðbréfaviðskiptum.

Hreiðar Már Hermannsson er nýr forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Arion banka. Hann tekur við af Lýði Þór Þorgeirssyni sem hefur sagt starfi sínu lausu hjá bankanum. Hreiðar Már hóf störf hjá Arion banka árið 2019 og hefur starfað við sérhæfðar lánveitingar á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði. Á árunum 2016-2019 vann Hreiðar við fjárfestingar hjá VÍS. Þar áður starfaði hann við eignastýringu hjá Glitni og fyrirtækjaráðgjöf hjá Oury Clark í London. Hreiðar er viðskiptafræðingur frá London South Bank University og með MSc í fjármálum frá sama skóla.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira