10.06.2022

Raf­ræn­ar þing­lýsingar bíla­lána Arion banka

Þinglýsingar bílalána hjá Arion banka eru nú 100% rafrænar. Arion banki hefur í talsverðan tíma boðið upp á rafræn bílalán til þæginda fyrir viðskiptavini sem geta nú sem fyrr óskað eftir bílaláni hvar og hvenær sem er óháð opnunartíma bankans. Allir geta sótt um bílalán hjá Arion banka, óháð því hvar umsækjendur eru með önnur bankaviðskipti. Með því að klára málið frá upphafi til enda með rafrænum hætti, allt frá umsókn um bílalán til þinglýsingar og útborgunar, styttist afgreiðslutími bílalánanna enn frekar.

Arion banki hefur aukið verulega við markaðshlutdeild sína á markaði bílafjármögnunar undanfarin misseri enda er lögð áhersla á góð kjör og framúrskarandi þjónustu.

Nánari upplýsingar um bílafjármögnun Arion banka má finna hér.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira