04.06.2023

Ríf­lega þreföld eftir­spurn í hluta­fjárút­boði Hamp­iðj­unnar

  • Um 3.700 áskriftir bárust fyrir um 32,3 milljarða króna.

  • Í áskriftarbók A er útboðsgengi 120 kr. á hlut. Áskriftir upp að 500 þúsund krónum að kaupverði voru ekki skertar. Skerðing áskrifta var að öðru leyti hlutfallsleg.

  • Í áskriftarbók B er útboðsgengi 130 kr. á hlut. Skerðing áskrifta var í samræmi við skilmála útboðsins. Fjárfestar sem tilgreindu lægra útboðsgengi fengu enga úthlutun.

  • Söluandvirði nemur um 10,9 milljörðum króna.

Almennu hlutafjárútboði Hampiðjunnar hf. lauk kl. 14:00 þann 2. júní. Alls bárust um 3.700 áskriftir að andvirði um 32,3 ma.kr. sem samsvarar ríflega þrefaldri eftirspurn. Tæplega sexföld eftirspurn var eftir þeim hlutum sem boðnir voru í áskriftarbók A. Tæplega þreföld eftirspurn var eftir hlutum sem boðnir voru í áskriftarbók B. Útboðsgengi í áskriftarbók A var fast, 120 kr. á hlut, en í áskriftarbók B er endanlegt útboðsgengi 130 kr. á hlut.

Seldir hlutir í áskriftarbók A nema 17 milljón hlutum að söluandvirði um 2 milljarðar króna. Við úthlutun voru áskriftir almennt skertar sem nemur um 95% en þó þannig að viðmiðum gagnvart áskriftum starfsmanna Hampiðjunnar og almennum áskriftum var fylgt, líkt og stefnt var að samkvæmt skilmálum útboðsins. Seldir hlutir í áskriftarbók B nema 68 milljón hlutum að söluandvirði um 8,8 milljörðum króna. Áskriftir í áskriftarbók B voru skertar hlutfallslega sem nemur um 40%.

Heildarfjöldi seldra hluta í útboðinu nam alls 85 milljón hlutum og heildarsöluandvirði hlutafjárútboðsins nam um 10,9 milljörðum króna.

Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar:

„Það er virkilega ánægjulegt að finna áhuga fjárfesta á Hampiðjunni en á þessum merku tímamótum bjóðum við mikinn fjölda hluthafa velkomna í hluthafahóp félagsins. Hlutafjáraukningin veitir okkur aukið bolmagn til að takast á við fyrirliggjandi verkefni af auknum krafti. Hampiðjan snýr nú aftur á Aðalmarkað eftir sextán ára fjarveru sem eitt af stærstu félögum markaðarins.“

Fjárfestum verður tilkynnt um úthlutun í útboðinu eigi síðar en 5. júní.

Gjalddagi áskriftarloforða fjárfesta er 7. júní næstkomandi og er ráðgert að afhending hinna nýju hluta til fjárfesta fari fram þann 9. júní.

Stefnt er að því að viðskipti með hlutabréf félagsins á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. hefjist þann 9. júní næstkomandi, en Nasdaq Iceland hf. hefur samþykkt umsókn félagsins um töku hlutabréfanna til viðskipta án fyrirvara.

Arion banki hafði umsjón með almennu hlutafjárútboði Hampiðjunnar.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira