10.02.2023

Sig­geir og Al­bert ráðnir til Arion banka

Siggeir Vilhjálmsson og Albert Guðmann Jónsson hafa hafið störf á viðskiptabankasviði Arion banka. Siggeir hefur tekið við starfi aðstoðarframkvæmdastjóra sviðsins og Albert Guðmann Jónsson tekið við starfi forstöðumanns vörustýringar. Báðir koma þeir frá Landsbankanum.

Siggeir starfaði hjá Landsbankanum í rúm 25 ár, síðast sem forstöðumaður viðskiptalausna einstaklinga og sem staðgengill framkvæmdastjóra einstaklingssviðs. Áður starfaði hann á upplýsingatæknisviði bankans og á fyrirtækjasviði við að þróa stafrænar viðskiptalausnir. Siggeir er tölvunarfræðingur að mennt og með MBA frá Háskóla Íslands.

Albert starfaði hjá Landsbankanum í um 18 ár og var deildarstjóri framþróunar í viðskiptalausnum einstaklinga. Albert er viðskiptafræðingur að mennt og með meistaragráðu í upplýsingastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira