16.11.2023

Sig­ur­veg­ar­ar í Fjár­festingar­keppni Arion

Við opnun markaða 4. september sl. hófst fjárfestingarkeppni Arion fyrir nemendur í Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Óhætt er að segja að þátttaka í keppninni hafi verið góð. Alls tóku 648 nemendur þátt og sýndu þeir mikinn metnað meðan á keppninni stóð og var fróðlegt að fylgjast með hver vinsælustu fyrirtækin til fjárfestinga voru.

Markmiðið með keppninni var að efla fræðslu um fjárfestingar og sjóðastýringu og gera nemendum kleift að kljást við raunveruleg verkefni úr atvinnulífinu. Við hvöttum nemendur til að kynna sér fræðsluefni í Dyngjuappinu þar sem farið var yfir helstu atriði og hugtök tengd fjárfestingum.

Það var virkilega gaman að sjá hversu margir nemendur skráðu sig til leiks. Nemendur af öllum kynjum voru hvattir til þátttöku en töluvert færri konur tóku þó þátt en karlar. Heimur fjárfestinga hefur lengi vel verið karlaheimur en það er von okkar að með átaki og keppnum líkt og þessari sé hægt að auka hlut kvenna í þátttöku í fjárfestingum og á markaðnum í heild sinni.

Fyrirkomulag keppninnar var þannig að keppendur fengu 100 milljón sýndarveruleikakrónur til þess að fjárfesta með á tímabilinu 4. september til 3. nóvember. Hægt var að eiga viðskipti með öll hlutabréf sem eru skráð á aðalmarkað Nasdaq og hlutabréf sem eru skráð á First North markaðinn. Sigurvegari keppninnar var síðan sá nemandi sem náði mestri ávöxtun á safnið sitt á umræddu tímabili.

Það gleður okkur að tilkynna hér með sigurvegara keppninnar en í 1. sæti var Valdimar Már Pétursson, í 2. sæti var Vésteinn Veigar Kristjánsson og í þriðja sæti var Finnur Finnsson, en þeir stunda allir nám við Háskólann í Reykjavík. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn.

Þegar keppnin sjálf var hálfnuð var ákveðið að halda aukakeppni, „Hver sigrar bónusvikuna“ og stóð hún yfir frá 1. október til 7. október. Voru það Róbert Orri Stefánsson úr Háskóla Íslands og Valdimar Már Pétursson úr Háskólanum í Reykjavík sem náðu mestri ávöxtun í bónusvikunni.

Við hjá Arion banka og Stefni óskum sigurvegurunum innilega til hamingju með árangurinn í keppninni. Við hvetjum jafnframt aðra þátttakendur sem og þá sem áhugasamir eru um fjárfestingar að halda förinni áfram í Dyngjuappinu þar sem hægt er að spreyta sig á hlutabréfamarkaðnum allt árið um kring.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira