04.03.2026

Skýrsla Arion banka um svik og ógnir í fjármála­þjónustu

Á undanförnum árum hafa netsvik aukist verulega og eru nú ein af stærri öryggisáskorunum íslenskra neytenda. Fullyrða má að meirihluti fullorðinna Íslendinga hafi orðið var við tilraunir til netsvika, hvort sem það er í formi tölvupósta, smáskilaboða, símhringinga eða annarra leiða. Samkvæmt skýrslu Seðlabanka Íslands um umfang svika í greiðsluþjónustu námu heildarsvik á árinu 2024 um einum milljarði króna, sem er talsverð aukning frá fyrri árum.

Arion banki hefur tekið saman skýrslu um svik og ógnir í fjármálaþjónustu til að stuðla að auknu gagnsæi og vitund um þróun svika og ógna. Skýrslan varpar ljósi á þær áskoranir sem bankinn og fjármálakerfið stendur frammi fyrir. Skýrslunni er ætlað að vera innsýn í þróun netsvika og netógna á undanförnum árum, þá sérstaklega á árinu 2025.

Þrátt fyrir hraða þróun hefur Arion banki náð góðum árangri í baráttunni gegn netsvikum og dregið verulega úr tjóni viðskiptavina. Frá árinu 2023 hefur tjón vegna netsvika lækkað með hverju ári, og náðist góður árangur á árinu 2025 þegar 98% allra tilrauna til innbrota í netbanka og í smáforrit bankans (e. app) voru stöðvaðar. Þessi árangur byggist á samspili forvirkra svikagreininga, öflugrar fræðslu og markvissra viðbragða starfsfólks bankans.

Netsvik eru sífellt að verða flóknari, persónulegri og hraðari í framkvæmd. Svikarar nýta margvíslegar boðleiðir (t.a.m. smáskilaboð, tölvupóst, símtöl og samfélagsmiðla) og laga aðferðir sínar hratt að hegðun notenda. Þetta kallar á stöðuga endurskoðun varna og viðvörunarkerfa, fræðslu og þekkingu viðskiptavina og getu til að bregðast við á réttan hátt.

Í skýrslunni er meðal annars fjallað um aukinn fjölda mála sem snúa að tryggingasvikum og fjölgun atvika þar sem ógnandi eða óviðeigandi hegðun viðskiptavina skapar óöryggi á starfsstöðvum bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira