29.09.2023

Til ham­ingju Arnar­lax með skráningu á First Nort­h-­markaðinn

Í morgun hófust viðskipti með hlutabréf Arnarlax á First North-markaði kauphallarinnar. Er Arnarlax sjöunda fyrirtækið á þeim markaði og það verðmætasta. Arnarlax hefur verið skráð í norsku kauphöllinni frá 2019 og er því frá og með deginum í dag tvískráð.

Þessu var fagnað við Bíldudalshöfn í morgun þegar Björn Hembre forstjóri Arnarlax hringdi inn upphaf viðskipta við hátíðlega athöfn.

Arion banki var ráðgjafi félagsins í tvískráningunni.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. nóvember 2026

Arion banki breyt­ir vöxtum óverðtryggðra íbúðalána með fasta vexti

Frá og með deginum í dag, 20. nóvember, lækka óverðtryggðir íbúðalánavextir, fastir til þriggja ára, um 0,40 prósentustig og verða 8,35%. Breytingin á aðeins við um ný lán.

Lesa meira
13. nóvember 2026

Truflun á tölvupóstþjónustu

Vegna tæknilegra truflana í þjónustu sem við nýtum hjá Microsoft eigum við í tímabundnum vandræðum með tölvupóstþjónustuna okkar. Truflanirnar kunna einnig að hafa áhrif á aðra þjónustu og kerfi.

Lesa meira
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira