20.09.2024

Um yfir­töku­til­boð Langa­sjáv­ar til hlut­hafa Eikar fasteigna­félags

Langisjór ehf., eigandi 32,31% hlutafjár í Eik fasteignafélagi hf., hefur lagt fram yfirtökutilboð, á grundvelli tilboðsskyldu tilboðsgjafa samkvæmt 100. gr. laga nr. 108/2007 um yfirtökur, til hluthafa Eikar fasteignafélags hf. um kaup á hlutum þeirra í félaginu á kr. 11 á hlut.

Allar helstu upplýsingar um tilboðið má finna hér. Tilboðstímabil stendur frá kl. 09:00 þann 20. september 2024 til kl. 13:00 þann 18. október 2024.

Langisjór er móðurfélag fyrirtækja í framleiðslu og dreifingu á matvælum ásamt útleigu og uppbyggingu atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Meðal fyrirtækja í samstæðu Langasjávar eru Alma íbúðafélag, Brimgarðar, Mata, Matfugl, Salathúsið og Síld og fiskur. Hjá samstæðunni starfa í heildina um 450 manns.

Langisjór hefur umtalsverða reynslu af rekstri fasteignafélaga, fasteignaþróunarverkefna og rekstrarfélaga. Auk þess hefur félagið verið einn stærsti einkafjárfestir í Eik, Heimum og Reitum síðustu ár.

Langisjór hyggst, með framlagningu yfirtökutilboðsins, viðhalda skráningu hlutabréfa félagsins á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland og beita sér fyrir ákveðnum ráðstöfunum í rekstri félagsins sem gert er grein fyrir tilboðsyfirliti sem hægt er að nálgast hér.

Hægt er að samþykkja tilboðið með tvennum hætti, með því að:

  • samþykkja tilboðið rafrænt á vef yfirtökutilboðsins hér. Hægt er að skrá sig inn á vefslóðina með rafrænum skilríkjum, eða

  • fylla út og undirrita samþykktareyðublað sem finna má hér og koma frumriti til Arion banka hf., Borgartúni 19, 105 Reykjavík, eigi síðar en kl. 13.00 þann 18. október 2024.

Arion banki hf. er umsjónaraðili yfirtökutilboðsins fyrir hönd Langasjávar ehf. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. í gegnum tölvupóstfangið eik@arionbanki.is og í síma 444-7000.

Frétt þessi er útbúin í upplýsingaskyni og felur ekki í sér ráðgjöf af hálfu Langasjávar ehf. eða Arion banka hf. Tilboðshöfum er bent á að afla sér viðeigandi ráðgjafar sérfræðinga.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira