27.01.2023

Val­frjálst til­boð til hlut­hafa Origo hf.

Allar frekari upplýsingar um valfrjálsa tilboðið má finna hér. Tilboðstímabil stendur frá kl. 09:00 þann 19. janúar 2023 til kl. 13:00 þann 22. febrúar 2023.

AU 22 ehf., eigandi 29,3% hlutafjár í Origo hf., hefur lagt fram valfrjálst tilboð til hluthafa Origo hf. um kaup á hlutum þeirra í félaginu á kr. 101 á hlut.

AU 22 ehf. er eignarhaldsfélag í fullri eigu Umbreytingar II slhf., framtakssjóðs í rekstri Alfa Framtaks ehf. Alfa Framtak fjárfestir í fyrirtækjum, oftast sem meirihlutaeigandi og beitir sér markvisst fyrir virðisaukningu. Stefna Alfa Framtaks er að skila fyrirtækjum af sér í betra ástandi en þegar þau voru keypt og þannig skilja eftir jákvæð fótspor í íslensku viðskiptalífi.

Hægt er að samþykkja tilboðið með tvennum hætti, með því að:

  • samþykkja tilboðið rafrænt á vef valfrjálsa tilboðsins hér. Hægt er að skrá sig inn á vefslóðina með rafrænum skilríkjum, eða

  • fylla út og undirrita samþykkiseyðublað sem finna má hér og koma frumriti til Arion banka hf., Borgartúni 19, 105 Reykjavík, eigi síðar en kl. 13.00 þann 22. febrúar 2023.

Arion banki hf. er umsjónaraðili valfrjálsa tilboðsins fyrir hönd AU 22 ehf. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. í gegnum tölvupóstfangið origo@arionbanki.is og í síma 444-7000.

Frétt þessi er útbúin í upplýsingaskyni og felur ekki í sér ráðgjöf af hálfu AU 22 ehf. eða Arion banka hf. Tilboðshöfum er bent á að afla sér viðeigandi ráðgjafar sérfræðinga.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira