23.11.2023

Vegna viðskipta­vina okk­ar í Grinda­vík

Eins og fram hefur komið í fréttum hafa Arion, Íslandsbanki og Landsbankinn, í samvinnu við SFF, gert samkomulag um að fella niður vexti og verðbætur af íbúðalánum vegna húsnæðis í Grindvík í þrjá mánuði.

Með þessu viljum við koma til móts við viðskiptavini okkar í Grindavík sem standa frammi fyrir mikilli óvissu. Til viðbótar hefur Arion banki þegar boðið Grindvíkingum að frysta íbúðalán sín í 3 mánuði.

Unnið er að nánari útfærslu á framkvæmdinni og munum setja okkur í samband við alla okkar viðskiptavini frá Grindavík og fara yfir þetta með þeim.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. nóvember 2026

Arion banki breyt­ir vöxtum óverðtryggðra íbúðalána með fasta vexti

Frá og með deginum í dag, 20. nóvember, lækka óverðtryggðir íbúðalánavextir, fastir til þriggja ára, um 0,40 prósentustig og verða 8,35%. Breytingin á aðeins við um ný lán.

Lesa meira
13. nóvember 2026

Truflun á tölvupóstþjónustu

Vegna tæknilegra truflana í þjónustu sem við nýtum hjá Microsoft eigum við í tímabundnum vandræðum með tölvupóstþjónustuna okkar. Truflanirnar kunna einnig að hafa áhrif á aðra þjónustu og kerfi.

Lesa meira
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira