01.06.2023

Verð­tryggð­ir sparnaðar­reikningar Arion með 90 daga út­tektar­fyrir­vara frá 1. júlí

Nýlega kynnti Arion til leiks verðtryggða sparnaðarleið sem er með 90 daga úttektarfyrirvara en er ekki bundin að öðru leyti. Sparnaðarleiðin kallast Vöxtur verðtryggður og er fyrsti sparnaðarreikningur sinnar tegundar hér á landi. Frá og með 1. júlí næstkomandi munu allir almennir verðtryggðir sparnaðarreikningar einstaklinga, óháð því hvenær þeir voru stofnaðir, verða eins og Vöxtur verðtryggður. Í stað bindingar í 36 mánuði eða lengur kemur aðeins 90 daga úttektarfyrirvari. Þetta á þó ekki við um orlofsreikninga og Framtíðarreikning Arion banka sem er ætlaður ungu fólki og er áfram bundinn fram að 18 ára aldri.

Í júnímánuði geta viðskiptavinir, sem eiga verðtryggðan sparnaðarreikning stofnaðan á síðasta ári eða fyrr, tekið út þær innistæður sem eru lausar, kjósi þeir að gera það. Hægt er að millifæra í Arion appinu og netbanka. Til að mynda eru vextir sem greiddir hafa verið inn á reikningana lausir sem og þær innistæður sem ljúka binditíma í júní. Eftir 1. júlí 2023 verður hins vegar öll innistæða þessara sparnaðarreikninga með 90 daga úttektarfyrirvara.

Nýjar reglur Seðlabankans um verðtryggð innlán, sem tóku gildi í dag, gera okkur kleift að breyta verðtryggðum sparnaðarreikningum með þessum hætti, viðskiptavinum okkar til hagsbóta.

Nánar má lesa um Vöxt verðtryggðan hér og nýja skilmála innlánsreikninga er að finna hér.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira