11.05.2023

Verð­tryggður sparnaðar­reikningur með að­eins 90 daga út­tektar­fyrir­vara – nýtt á Ís­landi!

Arion banki býður nú einstaklingum og heimilum verðtryggða sparnaðarleið sem er aðeins bundin í 90 daga en ekki þrjú ár eins og lög hafa hingað til kveðið á um. Vöxtur verðtryggður er nýr verðtryggður sparnaðarreikningur Arion banka með aðeins 90 daga bindingu. Þetta er fyrsti sparnaðarreikningur sinnar tegundar hér á landi.

Arion banki getur boðið upp á þessa nýju sparnaðarleið vegna breytinga á lögum sem taka gildi 1. júní næstkomandi. Lagabreytingin felur í sér að verðtryggð innlán þurfa ekki lengur að vera bundin í þrjú ár. Eftir 1. júní verður því hægt að óska eftir úttekt af sparnaðarreikningnum sem verður greidd út 90 dögum síðar.

Síðustu 12 mánuði hefur verðbólga mælst 9,9%. Því hefur reynst erfitt að fá vexti á sparnað sem halda í við verðbólgu, án þess að festa sparnaðinn í þrjú ár. Með því að leggja inn á þennan nýja verðtryggða sparnaðarreikning Arion banka heldur sparifé betur verðgildi sínu þar sem innistæðan hækkar eða lækkar í takti við verðbólgu. Auk verðtryggingar ber reikningurinn 0,10% vexti.

Nánar má lesa um Vöxt verðtryggðan á vef Arion banka og unnt er að stofna reikninginn í Arion appinu og netbanka strax í dag.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira