03.03.2022

Viðskipti tengd Rússlandi, Hvíta-Rússlandi og Úkraínu

Viðskipti tengd Rússlandi, Hvíta-Rússlandi og Úkraínu lúta alþjóðlegum takmörkunum. Ísland hefur innleitt þvingunaraðgerðir vegna innrásar Rússlands í Úkraínu í samræmi við aðgerðir Evrópusambandsins og annarra ríkja. Einnig verður lokað fyrir aðgengi tiltekinna rússneskra banka að alþjóðlega SWIFT-greiðslukerfinu.

Arion banki hefur ekki milligöngu um viðskipti við aðila sem lúta viðskiptaþvingunum.

Öll önnur viðskipti tengd Rússlandi, Hvíta Rússlandi eða Úkraínu sæta aukinni vöktun hjá bankanum. Vegna þessa kann að taka lengri tíma að afgreiða slík viðskipti og viðskiptavinir mega búast við að þurfa að veita ítarlegri upplýsingar um viðskiptin. Þá kunna Arion banki eða alþjóðlegir millibankar að hafna afgreiðslu á slíkum viðskiptum, eftir atvikum.

Vinsamlegast athugið að aðgerðir geta breyst með skömmum fyrirvara.

Ef spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við okkur með því að senda okkur póst á arionbanki@arionbanki.is, hringja í þjónustuverið okkar í síma 444 7000 eða í gegnum netspjallið hér á arionbanki.is.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira