10.03.2023

Vörður og Arion sam­an á Sel­fossi

Vörður tryggingar hefur opnað þjónustuskrifstofu í útibúi Arion á Selfossi. Þar verður nú að finna alla tryggingar- og fjármálaþjónustu félaganna undir einu og sama þaki.

Ráðgjafar Varðar aðstoða viðskiptavini við hvaðeina sem lýtur að tryggingum og tjónum og ráðgjafar Arion veita alla þjónustu er snýr að fjármálum og leiðbeina með notkun á stafrænum þjónustuleiðum. Sem fyrr er áhersla á einfalda og þægilega þjónustu með ánægju viðskiptavina að leiðarljósi.

Útibúið á Selfossi er opið alla virka daga milli klukkan 10:00 og 16:00.

Hlökkum til að sjá þig.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira