23.10.2023

Vör­um við nýrri teg­und net­svika

Við vörum við nýrri tegund netsvika sem felast í því að tölvupóstar berast fólki sem virðast koma frá Ísland.is. Í póstinum er óskað eftir því að viðkomandi uppfæri rafræn skilríki á vefsíðu sem lítur mjög sannfærandi út. Tilgangur svikanna er að komast inn í netbanka viðskiptavina og framkvæma færslur út af reikningum.

Sjá hér viðvörun frá Ísland.is þar sem m.a. kemur fram að þeirra vefur er aldrei notaður til innskráningar í netbanka.

Við hvetjum alla okkar viðskiptavini til að vera á varðbergi og ítrekum mikilvægi þess að skoða vandlega öll skilaboð sem berast. Aldrei á að samþykkja innskráningar með rafrænum skilríkjum nema vera viss um að um að ekki sé um svik að ræða


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira