Platinum Business travel
Kort fyrir stjórnendur sem ferðast á vegum fyrirtækisins og þarfnast öflugra ferðatrygginga.
Lykilnotendur stofna kort í netbankanum.

Kort fyrir stjórnendur sem ferðast á vegum fyrirtækisins og þarfnast öflugra ferðatrygginga.
Lykilnotendur stofna kort í netbankanum.

Kort fyrir stjórnendur sem ferðast reglulega á vegum fyrirtækisins og vilja njóta víðtækra ferðafríðinda ásamt öflugum ferðatryggingum.
Vildarpunktasöfnun með Icelandair
Platinum Business Travel kortið er tengt Vildarklúbbi Icelandair gegn árlegu tengigjaldi að fjárhæð 1.500 kr. Við skráningu fær korthafi 2.500 Vildarpunkta og safnar jafnframt 12 Vildarpunktum fyrir hverjar 1.000 kr. af innlendri og erlendri veltu kortsins.
Saga Lounge og flýtiþjónusta
Handhafar kortsins njóta frís aðgangs að Saga Lounge í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar flogið er með áætlunar- eða leiguflugi Icelandair. Einnig er í boði flýtiinnritun (Priority check-in) í Keflavík í flug Icelandair.
Aðgangur að betri stofum víða um heim
Korthafar geta óskað eftir Priority Pass, sem veitir aðgengi að yfir 1.200 betri stofum á flugvöllum víða um heim. Greitt er fyrir inngöngu í stofur hverju sinni og einnig er hægt að bjóða gesti með sér gegn gjaldi. Priority Pass gildir ekki í Saga Lounge í Keflavík.
Veltutengdur afsláttur af árgjaldi
50% afsláttur af árgjaldi ef ársvelta er yfir 9.000.000 kr.
100% afsláttur af árgjaldi ef ársvelta er yfir 16.000.000 kr.
| Trygging | Upphæð |
|---|---|
| Dánarbætur v/ slyss | 12.000.000 kr. |
| Örorkubætur v/ slyss | 12.000.000 kr. |
| Sjúkratrygging | 16.000.000 kr. |
| Endurgreiðsla ferðar | — |
| Sjúkradagpeningar | 144.000 kr. |
| Farangurstrygging | 400.000 kr. |
| Farangurstöf | 8 klst. |
| Ferðatöf | 12 klst. |
| Tafir á leið að flugvelli | — |
| Tafir vegna yfirbókunar | — |
| Innkaupakaskó | — |
| Mannránstrygging | 720.000 kr. |
| Forfallatrygging | 350.000 kr. |
| Ábyrgðartrygging | 40.000.000 kr. |
| Kaskótrygging vegna bílaleigubíls | — |
| Viðbótarábyrgðartrygging vegna bílaleigubíls | USD 1.000.000 |
| Gildistími | — |
Við bjóðum fyrirtækjum að skrá valið starfsfólk sem lykilnotendur en þessir einstaklingar fá þá auknar heimildir til að stýra fjármálunum fyrirtækisins í netbankanum.
Kortasvik eru sem betur fer fátíð, enda reynum við eftir bestu getu að tryggja öryggi korthafa með áhættustýringu og svikavöktun.
Ef það kemur færsla á kortið þitt sem þú telur af einhverjum ástæðum ekki eiga rétt á sér getur þú mögulega átt rétt á endurkröfu samkvæmt endurkröfureglum kortasamtaka.
Ef þú telur þig hafa orðið fyrir netsvikum skaltu tafarlaust hafa samband við okkur í síma 444 7000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið netsvik@arionbanki.is. Við svörum líka utan almenns opnunartíma.
Korthafar Arion eru með ferðatryggingar hjá Verði og eru þær innifaldar í árgjaldi kreditkortsins. Tryggingarnar geta verið mismunandi eftir því hvaða kort þú ert með og hvetjum við þig til að kynna þér þær vel.
SOS International sinnir neyðarþjónustu við korthafa allan sólarhringinn. Það sem fellur hér undir er almenn læknishjálp, sjúkraflutningar, tímabundin fyrirgreiðsla vegna greiðslu sjúkrakostnaðar og ráðgjöf.
Hér getur þú fundið svör við algengum spurningum er varða notkun og öryggi í kortaviðskiptum.