Þinn árangur - Vera

Varstu að flytja til Ís­lands og vant­ar banka­reikn­ing?

Að stofna bankareikning hjá Arion banka er mjög einfalt


Eina skilyrðið er að þú sért með íslenska kennitölu. Ef þú ert ekki nú þegar með íslenska kennitölu geturðu sótt um hana hjá Þjóðskrá Íslands á skra.is.

Þegar kennitalan er komin í hús geturðu valið um tvær leiðir til að stofna reikning:

1. Þú getur sótt um bankareikning með því að nota rafræn skilríki

Byrjaðu á því að sækja Arion appið. Þar má ganga í viðskiptasamband við bankann á einfaldan hátt með því að nota rafræn skilríki. (Til að fá rafræn skilríki þarf að hafa íslenska kennitölu og SIM-kortið í símanum þínum þarf að styðja við rafræn skilríki.)

Þegar þú ert komin/n með rafræn skilríki er auðvelt að stofna bankareikning, sækja um debetkort og nýta sér ýmsa aðra þjónustu í appinu.

Ef þú lendir í vandræðum með að nota rafrænu skilríkin skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur, annaðhvort með því að senda skeyti á arionbanki@arionbanki.is eða hringja í síma +354 444 7000.

2. Þú getur pantað tíma og komið í eitt útibúanna okkar

Ef þú ert ekki með rafræn skilríki, eða kýst að nota þau ekki, geturðu komið í næsta útibú bankans og stofnað þar til viðskipta. Við tökum alltaf vel á móti þér! Nauðsynlegt er að hafa með sér gild skilríki.

Við mælum þó eindregið með því að fáir þér rafræn skilríki og notir þau enda auðvelda rafrænu skilríkin aðgengi að margvíslegri þjónustu í íslensku samfélagi.

Nýttu þér besta bankaappið*

Í Arion appinu, sem er í boði á bæði íslensku og ensku, geturðu sinnt öllum helstu bankaviðskiptum þínum – sótt um kreditkort, fylgst með stöðunni, fryst kort, sótt bankaupplýsingar, stofnað sparnaðarreikning, keypt í sjóðum og svo framvegis.

*Arion appið var, sjöunda árið í röð, besta íslenska bankaappið samkvæmt Maskínu 2023.

Við einföldum þér lífið

Þjónustuver Arion banka og netspjallið á arionbanki.is eru opin alla virka daga á milli 9-16. Þá má alltaf senda okkur tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is ef eitthvað er að vefjast fyrir þér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira
Húsfélög og Félagasamtök

Hvernig getur yngra fólk sparað sér fyrir íbúð?

Katrín Lára Sigurðardóttir er ungur sérfræðingur hjá Arion banka og kveðst hafa byrjað snemma að spara sér fyrir fyrstu íbúðinni sinni.

Lesa meira