Byrjum snemma að spara!
Það er gott að byrja snemma að huga að sparnaði fyrir eigin íbúð. Með reglulegum sparnaði byggir þú smám saman upp eigið fé og færir þig nær markmiðinu.

Það er gott að byrja snemma að huga að sparnaði fyrir eigin íbúð. Með reglulegum sparnaði byggir þú smám saman upp eigið fé og færir þig nær markmiðinu.

Íbúðasparnaður er fyrir einstaklinga frá og með árinu sem þeir verða 14 ára og fram að 35 ára aldri. Þú getur lagt inn á reikninginn hvenær sem er á því tímabili.
Þú getur stofnað fleiri en einn reikning og skipt sparnaðinum eftir markmiðum.
Þótt reikningurinn heiti Íbúðasparnaður ræður þú hvernig þú nýtir sparnaðinn þegar kemur að úttekt.
Inneignin er bundin í 11 mánuði frá fyrstu innborgun. Eftir þann tíma tekur við 31 dags úttektarfrestur. Þú pantar úttekt og upphæðin er greidd 31 degi síðar.
Reikningurinn ber breytilega vexti samkvæmt vaxtatöflu Arion banka hverju sinni. Vextir eru greiddir árlega.


Víðast hvar má núorðið greiða með kortum og gjaldeyrir því nánast orðinn óþarfi á ferðalögum. Stundum er þó skynsamlegt að vera með gjaldeyri á sér til öryggis. Skemmst er að minnast óvænts rafmagnsleysis á Spáni og í Portúgal sem varð til þess að ekki var hægt að greiða með kortum. Einnig geta komið upp aðstæður þar sem kortið bara virkar ekki eða söluaðilar vöru eða þjónustu kjósa frekar að fá greitt í peningum, til að mynda leigubílstjórar eða veitingastaðir. Margir kjósa einnig að gefa þjórfé með peningum.

Það er aldrei of seint að byrja að spara. Hins vegar getur verið svolítið erfitt að gera einmitt það: Að byrja. Því að stóra spurningin er …
… hvar byrjar maður eiginlega?

Sparnaður er mikilvægur til þess að öðlast fjárhagslegt öryggi og hafa svigrúm til þess að mæta óvæntum útgjöldum. Við höfum tekið saman nokkur góð ráð sem gott er að hafa í huga þegar kemur að sparnaði.
Reikningurinn helst óbreyttur og inneignin heldur áfram að bera vexti samkvæmt gildandi vaxtatöflu. Eftir að þú verður 35 ára geturðu hins vegar ekki lagt meira inn á reikninginn. Þegar þú vilt taka út pantarðu úttekt og upphæðin er greidd 31 degi síðar.
Vextir eru greiddir árlega. Reikningurinn ber breytilega vexti samkvæmt vaxtatöflu Arion banka hverju sinni.
Þegar binditímanum lýkur geturðu pantað úttekt. Upphæðin er greidd 31 degi eftir að úttekt er pöntuð.
Já, þú getur stofnað fleiri en einn Íbúðasparnað og skipt sparnaðinum eftir markmiðum.
Þú getur lagt inn á reikninginn hvenær sem er fram að 35 ára aldri. Reglulegar innborganir geta hjálpað þér að byggja sparnaðinn jafnt og þétt upp.
Þú stofnar Íbúðasparnað hjá Arion banka. Reikningurinn er í boði frá og með árinu sem þú verður 14 ára og fram að 35 ára aldri.
Já, hægt er að óska eftir flýtiafgreiðslu úttektar gegn gjaldi samkvæmt gildandi verðskrá Arion banka.
Nei. Þótt reikningurinn heiti Íbúðasparnaður ræður þú hvernig þú nýtir sparnaðinn þegar kemur að úttekt.