16.07.2025

Konur fjár­festum: Árangur ársins 2024

Arion banki hefur gefið út stutta og aðgengilega skýrslu með samantekt á þeim árangri sem náðist á fyrsta ári átaksins Konur fjárfestum.

Ástæða þess að Arion banki fór af stað með Konur fjárfestum átakið er að enn ríkir ekki jafnræði milli kynja þegar kemur að sparnaði, lífeyriseign eða þátttöku á fjármálamarkaði. Við viljum bæta úr þessu.

Í skýrslunni er farið yfir stöðu mála í upphafi árs 2024, helstu áskoranir dregnar fram í dagsljósið og sýnt með tölfræðilegum hætti hvar við þurfum að spýta í lófana til að jafna stöðuna.

  • Tekjudreifing kynjanna er enn mjög ójöfn

  • Ef ekkert breytist eru 70 ár í að verðbréfaeign kynjanna verði jöfn

  • Aðeins 24% framkvæmdastjóra í íslensku atvinnulífi eru konur

  • Aðeins fjórar konur eru forstjórar skráða félaga í Kauphöll á móti 29 körlum

Sem betur fer hefur þó margt gott gerst á allra síðustu árum. Í skýrslunni setjum við á myndrænan hátt fram yfirlit um þann mælanlega árangur sem við sjáum í tölfræði ársins 2024 yfir okkar viðskiptavini og rekja má til Konur fjárfestum verkefnisins:

  • Sjóðaviðskipti kvenna jukust um 11% á móti 6% hjá körlum

  • Heildareignir kvenna í vörslusöfnum jukust um 8,5% á móti 2,9% hjá körlum

  • Eignir kvenna í áskriftarsjóðum jukust um 19% á móti 7% hjá körlum og eru nú 46% af heildinni

  • 19% fleiri konur keyptu í sjóðum árið 2024 en árið á undan

Ekki fer á milli mála að stór hópur kvenna í íslensku samfélagi hefur mikinn áhuga á að bæta fjármálalæsi sitt eins og sést á þeirri miklu aðsókn sem fræðsluviðburðirnir okkar úti um allt land hafa fengið, en fleiri en 4.000 konur sóttu Konur fjárfestum viðburði á árinu 2024. Á þeim viðburðum vörpuðum við meðal annars ljósi á fjármál og fjárfestingar, hvernig markaðir virka, hvernig stofna má fyrirtæki og hvernig gerð skattframtals fer fram, auk þess sem við höfum kafað í lífeyrismál og tryggingar.

Við sjáum glögglega að öflugar fræðsluherferðir á borð við Konur fjárfestum gegna lykilhlutverki í að auka fjárhagslegt sjálfstæði kvenna og hvetja þær til dáða. Við vonum að skýrslan kveiki áhuga og svörum glöð öllum fyrirspurnum. Um leið tökum við fram að Konur fjárfestum er langtímaverkefni og við erum því aðeins rétt að byrja

Hér má nálgast skýrsluna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
01. júní 2026

Skráðu þig á morgunfund Arion banka um netöryggi og gervigreind

Netógnum fjölgar ört og netskúrkar verða sífellt útsmognari. Þá flækir gervigreindin málið enn frekar bæði hvað varðar sókn og varnir í netöryggi.

Lesa meira
29. maí 2026

Rýnt í framtíð fiskeldis á glæsilegri ráðstefnu í Arion banka

Hringborð sjávar og eldis (Icelandic Aquaculture and Ocean Forum, eða IAOF) stóð fyrir fiskeldisráðstefnu í samstarfi við Arion banka fjórða árið í röð dagana 21. og 22. maí síðastliðinn.

Lesa meira
29. maí 2026

„Mikið keppnisskap í fjölskyldunni“

Í mars síðastliðnum hélt Arion banki hina árlegu fjárfestingarkeppnina bankans í samstarfi við Dyngju. Að þessu sinni fór keppnin fram undir formerkjum „Konur fjárfestum“ langtímaátaksins og var því einungis ætluð konum.

Lesa meira
Konur fjárfestum: Árangur ársins 2024 - Arion banki