Stutta svarið er jú – því betra er seint en aldrei.
Jafnvel þótt það sé farið að styttast í starfslok getur það sem þú leggur fyrir núna haft umtalsverð áhrif á tekjur þínar þegar þú hættir að vinna.
Bestu árin bíða þín og hver veit nema sparnaðurinn geti hjálpað þér að láta gamlan draum rætast.
Þitt framlag
Mótframlag
Ávöxtun

Er of seint að fá sér kaffi núna?
Á myrkum fimmtudegi, hálf fimm síðdegis á síðustu mánuðum ársins, stendur miðaldra maður við kaffivélina og spyr sig þessarar áleitnu spurningar úr samnefndu lagi okkar ástkæra tónlistarmanns, hans heitinnar hátignar Prins Póló. En hvað þá um viðbótarlífeyrissparnað, er of seint fyrir mig að byrja núna?
Ef þú leggur til 2 til 4% af launum þínum í viðbótarlífeyrissparnað færðu 2% mótframlag frá launagreiðanda þínum.
Hægt er að greiða viðbótarlífeyrissparnað skattfrjálst inn á íbúðalán og ef þú ert að kaupa fasteign áttu möguleika á að nýta viðbótarlífeyrissparnaðinn til að auðvelda þér kaupin.
Ef þú fellur frá renna fjármunirnir sem þú hefur safnað í viðbótarlífeyrissparnað að fullu til erfingja. Erfingjar greiða ekki erfðafjárskatt af lífeyrissparnaði, heldur er útgreiðslan skattlögð samkvæmt lögum um tekjuskatt.
Þú greiðir ekki tekjuskatt við innborgun, aðeins við útgreiðslu. Enginn fjármagnstekjuskattur er tekinn af ávöxtun og enginn erfðafjárskattur af inneign við andlát. Sparnaðurinn er ekki aðfararhæfur við gjaldþrot.
Í viðbótarlífeyrissparnaði Arion banka getur þú valið á milli fjölbreyttra fjárfestingarleiða sem mæta ólíkum þörfum vegna aldurs og viðhorfs til áhættu.
Þegar fólk fer á eftirlaun lækka oft tekjurnar. Það er því snjallt ráð að nota viðbótarlífeyrissparnaðinn til að hækka tekjurnar á eftirlaunaaldri. Þú gætir jafnvel hætt fyrr að vinna.

Í Arion appinu býðst þér einstök yfirsýn yfir lífeyrissparnaðinn þinn. Ef þú ert ekki með viðbótarlífeyrissparnað hjá Arion banka nú þegar getur þú stofnað hann í appinu með nokkrum smellum.

Íslenska lífeyriskerfið getur verið svolítill frumskógur. Við hvetjum þó fólk til að bíta á jaxlinn og setja sig vel inn í lífeyrismálin, enda skiptir slík fyrirhyggja miklu varðandi þá möguleika sem okkur bjóðast við starfslok.

Viðbótarlífeyrissparnaður er ein tegund séreignarsparnaðar. Um er að ræða sparnaðarform sem felur í sér að launþegi má ráðstafa allt að 4% af heildarlaunum sínum í viðbótarlífeyrissparnað og launagreiðandi greiðir 2% mótframlag.

Sparnaður er mikilvægur til þess að öðlast fjárhagslegt öryggi og hafa svigrúm til þess að mæta óvæntum útgjöldum. Við höfum tekið saman nokkur góð ráð sem gott er að hafa í huga þegar kemur að sparnaði.

Í Lífeyrisbókinni okkar fjallar Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins, um skylduaðild að lífeyrissjóðum. Ekki er öllum frjálst að velja sér lífeyrissjóð en þeir sem geta það ættu að vanda valið því uppbygging sjóða er misjöfn. Lífeyrir fólks með sömu laun yfir starfsævina getur því verið mismunandi og auk þess bjóða sumir sjóðir eins og Frjálsi upp á að hluti skyldulífeyrissparnaðar fari í séreign sem erfist.
Styttri útgáfu af greininni má lesa hér fyrir neðan.

Arion banki gaf síðastliðið vor út Lífeyrisbók. Í henni fjallar Hjörleifur Arnar Waagfjörð, forstöðumaður eignastýringar fagfjárfesta hjá Arion, um eignastýringu fyrir lífeyrissjóði. Mikil ábyrgð hvílir á þeim sem sinna eignastýringu lífeyrissjóða og þeim ber að gæta í hvívetna hagsmuna umbjóðenda óháð öðrum hagsmunum, þar með talið sínum eigin.
Greinina má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Að eignast sína fyrstu íbúð er spennandi áfangi, en ferlið getur verið flókið og krefjandi. Þar sem íbúðakaup eru ein stærsta fjárfesting lífsins er lykilatriði að hefja sparnað snemma. Það tekur nefnilega tíma að safna nægu eigin fé til útborgunar, en með góðu skipulagi og réttu úrræðunum getur þú flýtt fyrir ferlinu.

Á myrkum fimmtudegi, hálf fimm síðdegis á síðustu mánuðum ársins, stendur miðaldra maður við kaffivélina og spyr sig þessarar áleitnu spurningar úr samnefndu lagi okkar ástkæra tónlistarmanns, hans heitinnar hátignar Prins Póló. En hvað þá um viðbótarlífeyrissparnað, er of seint fyrir mig að byrja núna?

Ójöfn staða sambúðaraðila hvað varðar lífeyrisréttindi hefur verið nokkuð í umræðunni. Í lögum um lífeyrissjóði er til staðar jöfnunarúrræði sem heimilar skiptingu eftirlaunaréttinda eða lífeyrisgreiðslna milli hjóna eða sambúðaraðila með frjálsum samningum. Margt þarf þó að hafa í huga þegar skoðað er hvort skipting eftirlaunaréttinda henti og ekki hægt að fullyrða að sú leið sé alltaf hin rétta í stöðunni.Ef ákveðið er að skipta lífeyrisréttindum nær skiptingin eingöngu til eftirlaunaréttinda þeirra sem eru eða hafa verið í hjúskap eða óvígðri sambúð og til réttinda sem orðið hafa til á þeim tíma. Skiptingin þarf að vera gagnkvæm, jöfn og ná til allra lífeyrissjóða sem sjóðfélagi og maki eiga réttindi í. Lagaskilyrði um heilsufar og aldur eiga við um skiptingu áunninna réttinda svo skoða þarf þann valmöguleika tímanlega.

Öll starfandi á aldrinum 16 til 70 ára greiða í lífeyrissjóð samkvæmt lögum í landinu. Með því að greiða í lífeyrissjóð eru okkur tryggð ævilöng eftirlaun á eftirlaunaárum og lífeyrisgreiðslur ef til áfalla kemur, s.s. örorku-, maka- og barnalífeyri. Misjafnt er hvort starfsstéttir séu skyldugar til að greiða í ákveðinn lífeyrissjóð eða hvort þær hafi frelsi til að velja lífeyrissjóð fyrir sinn skyldulífeyrissparnað.