01.10.2015

50% af­slátt­urinn renn­ur út á fimmtu­dag 15. októ­ber

Veittur verður 50% afsláttur af gengismun sjóða Stefnis, dagana 1.-15. október, vegna útgreiðslu spariskírteina ríkissjóðs (1995 1.fl.D 20 ár) þann 1. október. Sjóðaúrvalið og ítarlegar upplýsingar um einstaka sjóði má skoða á arionbanki.is/sjodir. Þar er að finna útboðslýsingu og lykilupplýsingar fyrir einstaka sjóði.

Hægt er að eiga viðskipti með sjóði Stefnis í netbanka Arion banka eða með því að hringja í 444 7000.

Rétt er að taka fram að í reglulegum sparnaði að sjóðum Stefnis er ekkert afgreiðslugjald og ávallt veittur 50% afsláttur af gengismun.

Við bendum á að fjárfestingum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Mikilvægt er að kynna sér vel útboðslýsingu og lykilupplýsingar sjóða áður en ákvörðun er tekin um viðskipti. Þar er m.a. að finna upplýsingar um áhættu og hvort umræddur sjóður telst verðbréfasjóður eða fjárfestingarsjóður. Arion banki er helsti söluaðili sjóða Stefnis hf. sem er sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki sem rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði skv. lögum nr. 128/2011. Stefnir hf. er dótturfélag Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira