07.03.2016

Af hverju er Arion banki í sam­starfi við Hönnunar­Mars?

Um árabil hefur það verið stefna Arion banka að efla tengslin við frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtæki. Bankinn hefur verið leiðandi í stuðningi við sprotafyrirtæki og leitast við að styðja nýsköpun með beinum hætti. Lýsandi dæmi fyrir það eru Startup Reykjavík og Startup Energy Reykjavík sem skapa umgjörð fyrir athafnafólk sem vill koma viðskiptahugmyndum sínum á framfæri.

Tenging hönnunar og atvinnulífs

Undanfarin ár hefur orðið mikil vitundarvakning í samfélaginu um það hversu stóru hlutverki hönnun gegnir í allri þróun á vörum, þjónustu og atvinnulífinu í heild sinni. Við hjá Arion banka gerum okkur grein fyrir þessari tengingu hönnunar og atvinnulífsins og viljum efla sambandið við hönnuði og hönnunarfyrirtæki sem búa yfir sköpunarkrafti og hugviti sem þarf að virkja. Hönnuðir stunda mjög mikilvægt frumkvöðlastarf og með því að auðvelda hönnuðum aðgang að atvinnulífinu og viðskiptatækifærum stuðlar bankinn að því að hönnun verði leiðandi afl í samfélaginu.

Markmið Arion banka á HönnunarMars er að skapa samtal milli hönnuða og viðskiptalífsins og kemur bankinn beint að þremur viðburðum. Í fyrsta lagi sem aðalbakhjarl DesignTalks sem markar upphaf HönnunarMars í ár. Þar mun fjöldi alþjóðlegra hönnuða í fremstu röð miðla þekkingu sinni og reynslu til íslenskra hönnuða.

Þann 11. mars hýsir Arion banki kaupstefnuna DesignMatch sem er afar þýðingarmikill vettvangur fyrir hönnuði til þess að koma hugmyndum sínum og verkum á framfæri við erlenda kaupendur og framleiðendur. Á kaupstefnum fyrri ára á HönnunarMars hafa komist á viðskiptasambönd sem hafa skipt sköpum fyrir íslenska hönnuði.

Allir velkomnir á sýningu í höfuðstöðvum Arion banka

Í höfuðstöðvum Arion banka að Borgartúni 19 verður sýning á skissum og vinnuaðferðum ólíkra hönnuða og arkitekta. Sýningin verður opin almenningi og hvetjum við alla til þess að koma og sjá hvernig hugmynd verður að veruleika hjá nokkrum af okkar færustu hönnuðum og arkitektum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira