11.11.2015

Af­koma Arion banka á fyrstu níu mán­uð­um ársins 2015

Hagnaður Arion banka á fyrstu níu mánuðum ársins 2015 nam 25,4 milljörðum króna samanborið við 22,6 milljarða króna á sama tímabili 2014. Markast afkoma tímabilsins mjög af óreglulegum liðum líkt og á árinu 2014. Skipta þar mestu einskiptisatburðir eins og sala bankans á hlutum í fasteignafélaginu Reitum, alþjóðlega drykkjaframleiðandanum Refresco Gerber og Símanum hf. í tengslum við skráningu félaganna í kauphöll. Arðsemi eigin fjár var 19,8% samanborið við 19,9% á sama tímabili árið 2014. Hagnaður af reglulegri starfsemi á tímabilinu nam 13,5 milljörðum króna samanborið við 11,4 milljarða á sama tímabili 2014. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi nam 11,2% á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 10,1% á sama tímabili 2014. Heildareignir námu 1.009,5 milljörðum króna samanborið við 933,7 milljarða króna í árslok 2014.

Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 23,5% en var 26,3% í árslok 2014. Lækkunin er einkum tilkomin vegna arðgreiðslu að fjárhæð 12,8 milljarðar króna og fyrirframgreiðslu á víkjandi lánum frá ríkinu að fjárhæð 20 milljarðar króna. Hlutfall eiginfjárþáttar A nam 22,2% samanborið við 21,8% í árslok 2014.

Helstu atriði árshlutareikningsins:

  • Hagnaður eftir skatta nam 25,4 mö.kr. samanborið við 22,6 ma.kr. á sama tímabili 2014.

  • Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 13,5 mö.kr. samanborið við 11,4 ma.kr. á sama tímabili 2014.

  • Eiginfjárhlutfall nam 23,5% í lok tímabils samanborið við 26,3% í árslok 2014.

  • Arðsemi eigin fjár var 19,8% samanborið við 19,9% á sama tímabili 2014. Af reglulegri starfsemi nam arðsemin 11,2% á tímabilinu, samanborið við 10,1% á sama tímabili 2014.

  • Hreinar vaxtatekjur námu 20,3 mö.kr. samanborið við 18,3 ma.kr. á sama tímabili 2014.

  • Hreinar þóknanatekjur námu 10,7 mö.kr. samanborið við 10,1 ma.kr. á sama tímabili 2014.

  • Rekstrartekjur hækka umtalsvert á milli ára og námu 50,4 mö.kr. samanborið við 38,3 ma.kr. á sama tímabili 2014. Mikil hækkun rekstrartekna er einkum tilkomin vegna söluhagnaðar og hækkunar á verðmati á eignarhlutum í Reitum fasteignafélagi hf., Refresco Gerber og Símanum hf. í tengslum við skráningu félaganna á markað 2015.

  • Hrein virðisbreyting er neikvæð á tímabilinu og nemur 0,1 ma.kr., samanborið við 2,9 ma.kr. jákvæða virðisbreytingu á sama tímabili 2014. Hrein virðisbreyting lána hjá dótturfélaginu AFL – sparisjóði var neikvæð á tímabilinu og nam 1,7 ma.kr. eins og kom fram í hálfsárs uppgjöri bankans. Hrein virðisbreyting annarra lána samstæðunnar var jákvæð um sambærilega fjárhæð.

  • Tekjuskattur nam 3,6 mö.kr. samanborið við 4,4 ma.kr. á sama tímabili 2014.

  • Kostnaðarhlutfall var 38,4% en var 48,7% á sama tímabili 2014. Af reglulegri starfsemi nam kostnaðarhlutfall 49,7% samanborið við 54,6% á fyrstu níu mánuðum ársins 2014.

  • Eigið fé bankans var 174,8 ma.kr. en nam 162,2 mö.kr. í lok árs 2014.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Afkoma Arion banka á fyrstu níu mánuðum ársins er góð. Hún markast nokkuð af hagnaði af sölu á eignarhlutum í félögum í óskyldum rekstri í tengslum við skráningu þeirra á markað. Ljóst er að í framtíðinni mun draga úr áhrifum slíkra þátta á afkomu bankans sem þá verður borin uppi af hefðbundinni fjármálastarfsemi. Við erum vel undir þetta búin enda höfum við á undanförnum árum lagt áherslu á að styrkja grunnstoðirnar í rekstri bankans.

Mörg stór og spennandi verkefni hafa verið kláruð á fyrstu níu mánuðum ársins. Bankinn hefur staðið að baki öllum þremur nýskráningum í kauphöll það sem af er ári og þannig eflt hlutabréfamarkaðinn og komið endurskipulögðum félögum í dreift eignarhald. Mikill áhugi er á hlutafjárútboðum og framkvæmd þeirra. Við tökum mark á málefnalegri gagnrýni og munum breyta verklagi okkar þar sem við á. Arion banki kemur einnig að byggingu fimm stjörnu hótels við Hörpu og í október gerðum við samning um kaup á tryggingafélaginu Verði sem bíður afgreiðslu eftirlitsaðila.

Eins og við höfum áður getið um hefur tekist vel að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans á liðnum misserum. Þróun á eftirmarkaði með skuldabréf bankans á alþjóðlegum mörkuðum er jákvæð og hækkun lánshæfismats S&P upp í fjárfestingaflokk mun bæta enn frekar aðgengi að alþjóðlegum lánsfjármörkuðum.“

Fundur með markaðsaðilum

Arion banki mun halda símafund á ensku fyrir markaðsaðila, fimmtudaginn 12. nóvember, klukkan 13:00. Á fundinum mun Stefán Pétursson, fjármálastjóri Arion banka, fara yfir helstu atriði í uppgjöri bankans. Áhugasamir geta sent tölvupóst á  ir@arionbanki.is og fá í kjölfarið sendar innhringiupplýsingar.

Afkomutilkynning Arion banka 9 M 2015
Árshlutareikningur Arion banka 30. september 2015
Fjárfestakynning Arion banka 9 M 2015

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira