16.11.2016

Af­koma Arion banka á fyrstu níu mán­uð­um ársins 2016

Hagnaður Arion banka á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 nam 17,3 milljörðum króna samanborið við 25,4 milljarða króna á sama tímabili 2015. Arðsemi eigin fjár var 11,2% samanborið við 19,8% fyrir sama tímabil árið 2015. Reiknaður hagnaður af reglulegri starfsemi nam 5,7 milljörðum króna samanborið við 11,5 milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins 2015. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi nam 3,7% samanborið við 9,5% á fyrstu níu mánuðum ársins 2015.

Heildareignir námu 1.038,5 milljörðum króna í lok september samanborið við 1.011,0 milljarða króna í árslok 2015 og eigið fé hluthafa bankans nam 206,9 milljörðum króna í lok september, samanborið við 192,8 milljarða króna í árslok 2015. Efnahagur bankans er sterkur og lögð hefur verið áhersla á trygga lausafjárstöðu í aðdraganda afnáms fjármagnshafta.

Eiginfjárhlutfall bankans í lok september var 26,1% en var 24,2% í árslok 2015. Hlutfall eiginfjárþáttar A hækkaði og nam 25,5% samanborið við 23,4% í árslok 2015.

Helstu rekstrar- og kennitölur bankans eru eftirfarandi:

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka

„Afkoman á fyrstu níu mánuðum ársins er viðunandi. Grunnrekstur bankans hefur verið aðeins undir væntingum enda hafa ytri aðstæður sumpart verið óhagstæðar. Þróun á hlutabréfamarkaði á tímabilinu hefur neikvæð áhrif, en bankinn er enn með stöður í skráðum félögum. Grunnrekstur bankans er engu að síður traustur og eiginfjárstaða bankans heldur áfram að styrkjast. Alþjóðlega lánshæfismats fyrirtækið Standard & Poor´s horfði til sterkrar eiginfjárstöðu bankans, bætts aðgengis að erlendum lánsfjármörkuðum sem og sterkrar stöðu íslensks efnahagslífs þegar fyrirtækið hækkaði nýlega lánshæfismat Arion banka í BBB/A-2 með jákvæðum horfum. Vaxtaálag á erlendum útgáfum bankans á eftirmarkaði hefur lækkað mikið sem ber vott um þá eftirspurn sem er til staðar á alþjóðlegum lánsfjármörkuðum eftir skuldabréfum bankans.

Í lok september gengu kaup Arion banka á tryggingafélaginu Verði í gegn og bætast þar með skaðatryggingar í vöruframboð bankans, en líftryggingar hafa verið hluti af vöruframboðinu um árabil. Vörður hefur þar með bæst í hóp dótturfélaga Arion banka og mun starfa náið með bankanum þegar kemur að sölu trygginga. Viðskiptavinir beggja munu njóta góðs af.“

Fundur með markaðsaðilum

Arion banki mun halda símafund á ensku fyrir markaðsaðila, fimmtudaginn 17. nóvember, klukkan 13:00. Á fundinum mun Stefán Pétursson, fjármálastjóri Arion banka, fara yfir helstu atriði í uppgjöri bankans. Áhugasamir geta sent tölvupóst á ir@arionbanki.is og fá í kjölfarið sendar nánari upplýsingar varðandi þátttöku á símafundinum.

Afkomutilkynning Arion banka 9M 2016
Ársreikningur samstæðu Arion banka 30. september 2016
Afkomukynning Arion banka 9M 2016

Yfirferð á afkomu Arion banka á þriðja ársfjorðungi 2016

Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka, fer yfir afkomu Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2016.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira