27.11.2023

Áfram stelp­urnar okk­ar!

Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að íslenska kvennalandsliðið í handbolta er að hefja keppni á HM á næstu dögum. Það var ævintýralegt þegar liðið komst óvænt inn á mótið eftir að hafa litið í lægra haldi í umspili fyrir sæti á mótinu. Við í Arion banka erum gríðarlega spennt að fylgjast með stelpunum okkar og hlökkum mikið til að hvetja þær áfram.

Við fengum þær Sunnu Jónsdóttur, fyrirliða landsliðsins, og Söndru Erlingsdóttur, lykilmanneskju í liðinu, til þess að setjast niður með okkur og leyfa okkur að fá smá innsýn inn í ferðalag liðsins á HM.

Sandra Erlingsdóttir:

„Við erum náttúrulega bara flestar að upplifa draum sem okkur hefur dreymt lengi. Við vonumst til að geta sýnt okkar bestu hliðar.“

Það er greinilega mjög góður andi í hópnum sem ætlar sér að njóta þess til fulls að keppa á meðal bestu liða heims. Flest íþróttafólk nefnir það sem mesta heiður ferilsins að fá að keppa fyrir hönd þjóðar sinnar á stórmóti og kvennalandsliðið í handbolta er þar ekki undanskilið. Stelpurnar okkar ætla því að njóta hverrar mínútu á mótinu og til þess að halda sér í núinu eru þær meira að segja búnar að setja upp keppni í jólaskreytingum á milli herbergja.

Sunna Jónsdóttir:

„Við ætlum að reyna að láta geisla af okkur algjörri ástríðu fyrir boltanum og fyrir því sem við erum að gera og sýna mikla gleði og samstöðu í hópnum. Svo hef ég líka fulla trú á því að við getum gert góða hluti á mótinu.“

Það sem er sérstaklega skemmtilegt við þetta ævintýri stelpnanna okkar er að það lengir verulega í handboltaveislu landsmanna þar sem karlalandsliðið í handbolta hefur leik á EM í janúar. Íslenska þjóðin fær því tvöfaldan handboltaskammt fyrir og eftir hátíðarnar og það er einstaklega gaman að fá að styðja bæði liðin á stórmóti á sama tíma. Það hefur lengi verið viðloðandi kvennaíþróttir að þær fái ekki jafn mikla athygli og umfjöllun og íþróttir karla en bæði Sunna og Sandra finna fyrir breyttu viðmóti og miklum meðbyr.

Sunna Jónsdóttir:

„Kvennaíþróttir eru að stækka á öllum sviðum og það er ótrúlega gaman að fá að taka þátt í því.“

Það er ekki hægt að spjalla við slíkar fyrirmyndir sem hafa náð framúrskarandi árangri á sínu sviði án þess að spyrja þær að því hvað árangur sé í þeirra huga.

„Árangur fyrir mér er að þú vaknar á morgnana og þú leggur þig fram í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur.“

Segir lykilmanneskjan Sandra Erlingsdóttir sem á vafalaust eftir að leggja sitt lóð á vogarskálarnar í komandi leikjum landsliðsins. Sunna Jónsdóttir hefur þetta að segja um árangur:

„Árangur er að ná markmiðum sínum og að geta lagst á koddann og líða vel með það sem maður gerði yfir daginn, að vera að stefna að einhverju.“

Við hvetjum alla landsmenn til þess að fylgjast með stelpunum okkar á HM og hvetja þær til dáða.

Áfram Ísland!

Sunna Jónsdóttir

Sandra Erlingsdóttir

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira