12.11.2015

Áhuga­verð ráð­stefna um sáttamiðlun í viðskipta­líf­inu

Á morgun, föstudaginn 13. nóvember, mun Douglas Frenkel sáttamiðlari og prófessor við háskólann í Pennsylvaníu, vera með erindi um sáttamiðlun í viðskiptalífinu í höfuðstöðvum Arion banka. Tilefnið er 10 ára afmælisráðstefna Sáttar, félags sáttamanna, en ráðstefnan verður haldin frá kl.15.00-16.30 og eru allir velkomnir. Skráning fer fram hér.

Frenkel er höfundur bókarinnar The Practice and Mediation og hefur unnið brautryðjendastarf á sviði sáttamiðlunar í Ameríku. Auk Frenkel mun Elmar Hallgríms Hallgrímsson, formaður Sáttar, vera með erindi en hann er lektor við Háskóla Íslands þar sem hann kennir meðal annars sáttamiðlun. Elmar var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun og sagði frá því hvað felst í sáttamiðlun og hvernig megi nýta þá leið í ágreiningsmálum. Hér má hlusta á viðtalið í heild sinni.

Mannauðsstjórar, lögfræðingar, nemendur og aðrir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira