28.11.2025
Alin upp í íþróttasalnum
Viðtal við Söndru Erlingsdóttur, fyrirliða íslenska landsliðsins í handbolta
Sandra Erlingsdóttir er fædd og uppalinn í Eyjum og kemur úr mikilli handboltafjölskyldu. Móðir hennar er Vigdís Sigurðardóttir, sem einnig lék með íslenska landsliðinu á sínum tíma, og faðirinn er Erlingur Richardsson, þekktur handboltaþjálfari sem hefur meðal annars þjálfað hollenska landsliðið.
„Ég er eiginlega alin upp í íþróttasalnum,“ segir Sandra. „Mamma segir mér sögur af því þegar ég var lítil og vildi frekar horfa á spólur með upptökur af gömlum handboltaleikjum en barnaefni.“
Sandra tók nýlega við sem fyrirliði íslenska landsliðsins og leiðir stelpurnar þegar þær mæta Þýskalandi í fyrsta leik liðsins á Heimsmeistaramótinu í handbolta miðvikudaginn 26. nóvember. Þýskaland er gestgjafaþjóð á HM að þessu sinni, ásamt Hollandi, og því ljóst að þessi fyrsti leikur íslenska stelpnanna verður hörkuviðureign.
En Sandra segir að það sé mikill hugur í hópnum og góður andi.
„Já, það er alveg sérstaklega góð stemning hjá okkur. Þetta er nýr hópur, fullt af yngri stelpum sem eru mjög metnaðarfullar. Markmiðið hjá okkur er að komast í milliriðil, ekki spurning.“
Ertu hjátrúarfull fyrir leiki?
„Nei, alls ekki. Ég fer á æfingu, kannski í smá göngutúr, horfi á vídjó til að kryfja andstæðinginn. Fer yfir það sem við ætlum að gera í leiknum. Annars er ég voða róleg.“
Sandra landaði Íslandsmeistaratitlinum með Val árið 2019 en áður hafði hún leikið um árabil með ÍBV. Hún fluttist til Danmerkur árið 2020 og lék þar með EH Aalborg frá 2020 til 2022 en færði sig þá til Þýskalands og gekk til liðð við TuS Metzingen. Hún er nú komin aftur heim, eftir að hafa eignast fyrsta barn sitt í fyrra, og er að vega og meta næstu skref. Næsta verkefni sé auðvitað að leggja allt í sölurnar á HM. Við þökkum henni fyrir spjallið og óskum henni góðs gengis á HM 2025.