28.11.2023

All­ar hetj­urnar í einni aug­lýsingu

Við Íslendingar erum orðin góðu vön þegar kemur að stórmótum og íslenska karlalandsliðinu í handbolta og það hefur nánast verið hægt að ganga að því vísu síðustu ár að þjóðin hefur getað fylgst með handboltastrákunum okkar og hvatt þá áfram á stórmóti í janúar á hverju ári.

Það verður engin breyting þar á í byrjun næsta árs en það sem gerir veisluna sem í vændum er enn skemmtilegri er sú staðreynd að íslenska kvennalandsliðið í handbolta tekur nú í nóvember þátt á HM í handbolta í fyrsta skiptið í 11 ár.

Þegar Arion lagði upp í þá vegferð að gera auglýsingar fyrir mótin sem einn af helstu styrktaraðilum HSÍ, lá beinast við að gera eina auglýsingu með báðum liðum í stað þess að gera tvær ólíkar auglýsingar. Viggó Jónsson, hugmyndasmiður auglýsingarinnar hafði þetta að segja um uppruna hugmyndarinnar.

Við vildum leggja landsliðin okkar bæði að jöfnu og hampa árangri þeirra beggja í einni auglýsingu. Það er virkilega gaman að fá að hvetja bæði landsliðin okkar áfram á stórmótum og með þessari auglýsingu vildum við einnig beina sjónum landsmanna að því að kvennalandsliðið okkar hefur verið í miklum vexti og framtíðin er björt í íslenskum handbolta, hvort sem er í kvenna- eða karlaboltanum. Við viljum leggja okkar að mörkum við að útrýma mismun í áhorfi og hvatningu íslenskra kvenna- og karlalandsliða.

Í auglýsingunni fá landsmenn að fylgjast með hetjunum úr landsliðunum tveimur skipta sér í lið þvert á kyn og keppa í handbolta. Kappið og leikgleðin skín í gegn og það fer ekkert á milli mála að þetta framúrskarandi íþróttafólk okkar hefur komist í fremstu röð, með dugnaði og elju en ekki síst með leikgleði og ástríðu.

Áfram Ísland!

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira