16.03.2015

Al­mennt hluta­fjárút­boð í Reit­um 25.-27.mars

  • Reitir vænta þess að viðskipti með hlutabréf félagsins geti hafist á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland 9. apríl

  • Arion banki býður 13,25% hlut í almennu útboði

  • Stærð útboðsins nemur að lágmarki 5,5 milljörðum króna miðað við lágmarksgengi 55,5 krónur á hlut

Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur ákveðið að óska eftir því við Nasdaq Iceland að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði. Samhliða verður óskað eftir því að tekinn verði til viðskipta skuldabréfaflokkur sem félagið gaf út í desember síðastliðnum og seldi til fagfjárfesta. Reitir vænta þess að viðskipti geti hafist 9. apríl næstkomandi en áður en að því kemur mun fara fram almennt útboð á hlutabréfum í félaginu dagana 25.-27. mars þar sem Arion banki hf. býður til sölu 13,25% eignarhlut í félaginu. Miðað við lágmarksverð útboðsins nemur heildarstærð þess 5.550 milljónum króna og svarar það til tæplega 42 milljarða króna markaðsvirðis alls hlutafjár í Reitum. Fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingabankasviðs Arion banka hefur umsjón með útboðinu og því ferli að fá bréf félagsins tekin til viðskipta.

Áskriftarleiðir og verðlagning í útboðinu

Tvær tilboðsbækur verða í boði fyrir fjárfesta og nemur samanlögð stærð þeirra 100.000.000 hlutum. Í tilboðsbók A verður fjárfestum boðið að skrá sig fyrir kaupum að andvirði á bilinu frá 100 þúsund krónum og upp í 10 milljónir króna. Þar verður tekið við áskriftum á verðbilinu 55,5–63,5 krónur á hlut en eitt endanlegt útboðsgengi í tilboðsbók A verður ákvarðað af seljanda í lok útboðs. Í tilboðsbók B verður tekið við áskriftum að andvirði yfir 10 milljónir króna. Þar verður lágmarksverð 55,5 krónur á hlut og ekkert hámarksverð tilgreint af seljanda en eitt endanlegt útboðsgengi í tilboðsbók B verður ákvarðað af seljanda í lok útboðs sem verður jafnt eða hærra útboðsgengi A.

Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita:

„Skráning Reita mun marka stór tímamót fyrir félagið og hluthafa þess sem í dag eru ríflega 200 talsins. Félagið sómir sér vel meðal fyrirtækja í kauphöll enda fjárhagslega sterkt og með traustan rekstur. Það verður einnig ánægjulegt að sjá nýjan 25 milljarða skuldabréfaflokk félagsins í kauphöll.“

Upplýsingar um félagið

17. mars 2015

Reitir hafa birt lýsingu hlutabréfa þar sem nálgast má helstu upplýsingar um félagið, hlutabréf þess og fyrirhugað útboð. Jafnframt hafa þeir birt fjárfestum kynningu á starfsemi sinni og útboðinu. Skjölin eru aðgengileg á vef félagsins og hér fyrir neðan.

REITIR fjárfestakynning
REITIR Lýsing hlutabréfa
Tilkynning um birtingu lýsinga

Reitir sérhæfa sig í þjónustu og rekstri atvinnuhúsnæðis með áherslu á verslunarhúsnæði, skrifstofu-húsnæði og hótelbyggingar á höfuðborgarsvæðinu. Heildareignir Reita í árslok 2014 námu 102 milljörðum króna. Fasteignir í eigu félagsins eru um 130 talsins og nálægt 410 þúsund fermetrum að stærð. Meðal fasteigna Reita má nefna stærstan hluta Kringlunnar, Hilton Reykjavík Nordica, Icelandair hótel Reykjavík Natura, Kauphallarhúsið og nokkrar af perlum íslenskrar byggingarsögu í miðbæ Reykjavíkur. Stærstu leigutakar Reita eru Hagar, Flugleiðahótel, ríki og sveitarfélög samtals með tæpan helming tekna félagsins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira