22.11.2024

Arion banki breyt­ir vöxt­um

Mánudaginn 2. desember taka eftirfarandi breytingar á inn- og útlánavöxtum Arion gildi:

Íbúðalán
  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,50 prósentustig og verða 10,14%

  • Óverðtryggðir fastir íbúðalánavextir lækka um 0,50 prósentustig og verða 8,3%

  • Verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,40 prósentustig og verða 5,04%

  • Verðtryggðir fastir íbúðalánavextir til 3 ára eru óbreyttir 4,74%

  • Verðtryggðir fastir íbúðalánavextir til 5 ára eru óbreyttir 4,49%

Kjörvextir
  • Óverðtryggðir breytilegir kjörvextir lækka um 0,50 prósentustig og verða 11,35%

  • Verðtryggðir breytilegir kjörvextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 6,7%

Innlán
  • Vextir veltureikninga lækka um allt að 0,50 prósentustig

  • Vextir annarra óverðtryggðra sparireikninga lækka um allt að 0,55 prósentustig

  • Verðtryggðir sparnaðarreikningar hækka um 0,30 prósentustig

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar. Það sama gildir um breytingar á vöxtum innlána sem falla undir lög um greiðsluþjónustu.

Vaxtabreytingar útlána Arion banka taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Hvers vegna lækka óverðtryggðir vextir en verðtryggðir hækka?

Stýrivextir hafa áhrif á bæði verðtryggða vexti og óverðtryggða en með ólíkum hætti.

Óverðtryggðir vextir fylgja breytingum á stýrivöxtum ágætlega. Nú voru stýrivextir lækkaðir um 0,5 prósentustig sem skapar svigrúm til lækkunar óverðtryggðra vaxta að teknu tilliti til annarra þátta sem nefndir eru hér að ofan.

Verðtryggðir vextir til styttri tíma endurspegla hins vegar muninn á stýrivöxtum og skammtíma verðbólgu og eru stundum kallaðir raunstýrivextir. Þessi munur er í dag mikill og hefur farið hækkandi þar sem lækkun stýrivaxta hefur ekki fylgt lækkandi verðbólgu, enda telur Seðlabanki Íslands nauðsynlegt að viðhalda aðhaldi með háu raunvaxtastigi. Þetta sést t.d. vel á skuldabréfamarkaði þar sem verðtryggðir vextir eru háir, sérstaklega vextir stuttra skuldabréfa sem eru nálægt stýrivöxtum í tíma. Því hækka breytilegir verðtryggðir vextir nú en munu lækka þegar raunstýrivextir lækka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira