21.11.2025

Arion banki breyt­ir vöxt­um 27. nóv­em­ber nk.

Fimmtudaginn 27. nóvember taka eftirfarandi breytingar á útlánsvöxtum neytenda og innánsvöxtum neytenda og fyrirtækja gildi:

Íbúðalán
  • Óverðtryggðir fastir íbúðalánavextir til þriggja ára lækka um 0,20 prósentustig og verða 8,10%

  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,25 prósentustig og verða 8,94% (ný lán ekki í boði í dag)

  • Verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,20 prósentustig og verða 4,59% (ný lán ekki í boði í dag)

Kjörvextir
  • Óverðtryggðir breytilegir kjörvextir lækka um 0,25 prósentustig og verða 10,10%

  • Verðtryggðir breytilegir kjörvextir lækka um 0,20 prósentustig og verða 6,25%

Bílalán
  • Kjörvextir bílalána lækka um 0,25 prósentustig og verða 10,50%

Yfirdráttavextir
  • Yfirdráttavextir lækka um 0,25 prósentustig og verða 15,00%

Kreditkort
  • Greiðsludreifing og veltuvextir kreditkorta lækka um 0,25 prósentustig og verða 15,00%

Innlán
  • Vextir verðtryggðra reikninga lækka um allt að 0,20 prósentustig

  • Vextir óverðtryggðra reikninga lækka á bilinu 0,05- 0,50 prósentustig

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar. Það sama gildir um breytingar á vöxtum innlána sem falla undir lög um greiðsluþjónustu.

Vaxtabreytingar útlána Arion banka taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Lækkun breytilegra vaxta óverðtryggðra íbúðalána um 0,25 prósentustig kemur fyrst og fremst til vegna þeirrar lækkunar á fjármögnunarkostnaði bankans sem lækkun stýrivaxta hefur í för með sér, helst í gegnum lækkun innlánsvaxta. Arðsemi bankans af umræddum lánum lækkar við það að vextirnir fylgi að fullu breytingum á stýrivöxtum, en markaðsaðstæður gefa tilefni til þess á þessum tímapunkti.

Í tilfelli verðtryggðra íbúðalána þá lækkar bankinn breytilega vexti um 0,2 prósentustig út frá mati bankans á breytingum á skammtímaraunvöxtum sem hafa áhrif á fjármögnunarkostnað bankans. Vextirnir lækka ekki að fullu leyti í takt við breytingu stýrivaxta þar sem skammtímaverðbólga hefur ekki lækkað að sama marki, enda byggir ákvörðun Peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að þessu sinni á þrengingu á lánakjörum fremur en þróun verðbólgu. Breytingin er einnig í takt við þróun ávöxtunarkröfu verðtryggðra ríkisskuldabréfa og sértryggðra skuldabréfa.

Fréttin var uppfærð 25. nóvember 2025.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira