03.09.2015

Arion banki fær­ir Land­spít­ala 400 ný sjúkra­rúm

Arion banki hefur fært Landspítala háskólasjúkrahúsi 150 milljónir króna að gjöf sem spítalinn mun nota til kaupa á nýjum sjúkrarúmum og dýnum. Afhendingin fór fram í dag á Landspítala við Hringbraut. Brýn þörf er innan spítalans á að endurnýja fjölda rúma sem komin eru til ára sinna. Með gjöfinni verður spítalanum gert mögulegt að kaupa 400 ný sjúkrarúm og dýnur á næstu tveimur árum og verða jafnframt gömlu rúmin tekin úr notkun. Á hverju ári eru legudagar sjúklinga á Landspítala um 220 þúsund og mun endurnýjun sjúkrarúma af þessari stærðargráðu hafa áhrif á þúsundir einstaklinga, bæði sjúklinga og starfsfólk. Gert er ráð fyrir að fyrstu rúmin verði tekin í notkun eftir sex til átta vikur.

Staðan á sjúkrarúmum spítalans var kortlögð í árslok 2013. Í ljós kom að af þeim 800 rúmum sem eru í notkun eru um 400 gömul járnrúm. Járnrúmin eru ýmist fótstigin eða rafknúin en rafvirkjar spítalans hafa séð um að rafvæða hluta af gömlu rúmunum til þess að bæta ástand þeirra. Aðstæður eru sérlega slæmar á geðsviði spítalans en þar er, auk gömlu rúmanna, einnig notast við bedda og svefnsófa fyrir sjúklinga.

,,Við erum afar þakklát Arion banka fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem mun snerta bæði sjúklinga og starfsfólk spítalans. Járnrúmin sem eru mörg hver hálfrar aldar gömul eru úreld og þjóna ekki sama hlutverki og nútíma rúm sem í dag eru lækningatæki. Gömlu rúmin eru of stutt fyrir marga sjúklinga okkar auk þess sem þau þola ekki mikla þyngd. Til viðbótar hefur verið erfitt fyrir starfsfólk að vinna við rúmin þar sem þau eru mörg hver rangskreið og erfitt er að hækka þau og lækka. Gjöf Arion banka mun breyta daglegu lífi sjúklinga og starfsfólks á spítalanum," segir Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala.

„Við viljum leggja okkar af mörkum til samfélagsins og málefni heilbrigðiskerfisins snerta okkur öll. Við hjá Arion banka höfum í gegnum tíðina stutt við heilbrigðisstofnanir víða um land með tækjagjöfum, þannig að þetta málefni er okkur sérstaklega hugleikið. Nú þegar rekstur og uppbygging bankans gengur vel þá viljum við láta gott af okkur leiða með þessum hætti. Við höfum undanfarið átt samstarf við Landspítala á sviði straumlínustjórnunar og kynnst spítalanum ágætlega. Við fengum fregnir af afleitu ástandi sjúkrarúma og að það kæmi niður á bæði sjúklingum og starfsfólki. Það er okkur því sérstaklega ánægjulegt að geta lagt okkar af mörkum til að bæta líðan sjúklinga og um leið starfsaðstæður starfsfólks spítalans,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka.

Mikilvæg lækningatæki

Nútíma sjúkrarúm eru lækningatæki sem eru útbúin flóknum búnaði til að mæta ítrustu kröfum um öryggi sjúklinga og aðstöðu starfsfólks. Þau eru rafdrifin með stillingum fyrir mismunandi sjúkdómsástand: stillingu fyrir stöðu vegna endurlífgunar, gráðuboga sem sýnir nákvæman halla á höfðalagi t.d. vegna höfuðáverka og stjórnborði sem gerir sjúklingi kleift að breyta stöðu rúmsins á eigin spýtur. Nútíma sjúkrarúm eru hönnuð til þess að sjúklingur geti verið í sem eðlilegustum stellingum í því. Þau geta breyst í stól og aðstoðað sjúklinginn við að standa á fætur. Öll hreyfing, þrátt fyrir alvarleg veikindi og rúmlegu af þeim sökum, er lykilatriði í að viðhalda vöðvastyrk og hefja endurhæfingu eins snemma og unnt er. Þá eru dýnurnar gríðarlega mikilvægar því þær þurfa að þola mikla þyngd, notkun og þrif. Góðar dýnur stuðla ekki aðeins að betri líðan sjúklinga heldur fyrirbyggja líka sáramyndun sem kostar ómælda peninga í formi sáraumbúða, sýklalyfja, flókinnar sárameðferðar, lengri legutíma auk þjáninga sem slíku fylgir fyrir sjúklinginn.

Meðfylgjandi eru myndir frá afhendingu ásamt mynd sem sýnir muninn á gömlu og nýju rúmunum.

Upplýsingamyndband um nýju rúmin

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira