14.03.2016

Arion banki fékk eftir­sókn­ar­verð verð­laun fyrir hrað­þjónustu­her­ferð

Arion banki var sigurvegari Íslensku árangursverðlaunanna sem afhent voru þann 4. mars á ÍMARK hátíðinni.

Árangursverðlaununum er ætlað að beina sjónum að herferðum sem skilað hafa framúrskarandi árangri en það eru stjórnir ÍMARK og SÍA sem veita verðlaunin. Bankinn fékk verðlaunin fyrir auglýsingaherferð þar sem kostir hraðþjónustu bankans, sem byggist fyrst og fremst á nýrri kynslóð hraðbanka, netbanka og appi, voru kynntir.

Birna Rún Gísladóttir frá markaðsdeild bankans og Elín Helga Sveinbjörnsdóttir frá Hvíta húsinu tóku á móti verðlaununum og voru með erindi um herferðina og þann góða árangur sem náðst hefur innan Arion banka við kynningu hraðþjónustunnar.

Birna Rún Gísladóttir, markaðsdeild Arion banka:

„Við erum afar stolt af þessum verðlaunum, Árangursríkasta auglýsingaherferð ársins 2015, enda teljum við þau vera eftirsóknarverðustu verðlaunin sem veitt eru til markaðsfólks á hverju ári. Verðlaunin eru einnig mikil hvatning fyrir það starf sem við höfum unnið með Hvíta húsinu. Markmið herferðarinnar var að auka notkun á hraðþjónustuleiðum bankans og breyta hegðun viðskiptavina og einfalda þeim þannig aðgengi að þjónustu bankans. Með því sköpum við virði fyrir viðskiptavininn en það er það sem við erum að leggja áherslu á alla daga. Markaðsstarf er fjárfesting og eins og með aðrar fjárfestingar þá viljum við ávaxta hana ríkulega. En auðvitað var það þannig að allir starfsmenn komu að þessari herferð með einum eða öðrum hætti, sérstaklega starfsfólk í útibúunum. Þessi markaðsherferð var fyrst og fremst að styðja við langtímamarkmið bankans varðandi þjónustuleiðir og því var starfsfólk í framlínu í lykilhlutverki í herferðinni. Þessi verðlaun eru merki um að vel hafi tekist til og fyrir það erum við afar þakklát.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira