03.03.2015

Arion banki gef­ur út skulda­bréf í evr­um

Stærsta skuldabréfaútgáfa íslensks banka um árabil til breiðs hóps alþjóðlegra fjárfesta

Arion banki hefur gefið út skuldabréf að upphæð 300 milljónir evra eða sem nemur um 45 milljörðum íslenskra króna. Í heild bárust tilboð frá um 100 fjárfestum fyrir rúmlega 675 milljónir evra. Umframeftirspurn var því ríflega tvöföld. Skuldabréfin eru til þriggja ára og bera fasta 3,125% vexti, og voru seld á kjörum sem jafngilda 3,10% álagi yfir millibankavexti. Um er að ræða fyrstu útgáfu íslensks banka í evrum sem seld er til breiðs hóps fjárfesta, allt frá endurreisn fjármálakerfisins.

Á síðasta ári samdi Arion banki við Citi, Deutsche Bank og Nomura um skipulagningu funda með evrópskum fjárfestum. Markmiðið var að gefa út skuldabréf í evrum þegar markaðsaðstæður væru réttar. Undanfarið hafa lánsfjármarkaðir þróast með jákvæðum hætti og í kjölfar sterks uppgjörs bankans sköpuðust aðstæður til skuldabréfaútgáfu af þessari stærðargráðu.

Til stendur meðal annars að nýta hluta lánsins til að greiða niður önnur og óhagstæðari lán og lækka þannig fjármögnunarkostnað bankans. Einnig munu fyrirtæki í viðskiptum við bankann, sem þörf hafa fyrir erlenda fjármögnun, njóta góðs af auknu aðgengi að erlendu lánsfé.

Skuldabréfaútgáfan nú er rökrétt framhald af markvissri vinnu undanfarinna ára. Snemma árs 2013 gaf bankinn út skuldabréf í norskum krónum og var þar með fyrsta íslenska fjármálafyrirtækið til að sækja sér erlenda fjármögnun frá árinu 2007. Í upphafi árs 2014 fékk bankinn svo lánshæfismatið BB+ frá alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækinu Standard & Poor‘s, fyrstur íslenskra banka. Síðar á árinu var horfum breytt úr stöðugum í jákvæðar. Lánshæfismat frá S&P er þýðingarmikið í þessu samhengi og stækkar til mikilla muna þann hóp fjárfesta sem áhuga hefur á skuldabréfum bankans.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Undanfarin ár hefur verið unnið ötullega að því að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans og bæta aðgengi að erlendum lánsfjármörkuðum. Þar er bankinn í fararbroddi íslenskra banka. Útgáfan nú er langstærsta skuldabréfaútgáfa íslensks banka um árabil sem seld er til breiðs hóps alþjóðlegra fjárfesta. Um er að ræða afrakstur vinnu undanfarinna ára og um mikilvægan áfanga að ræða. Skuldabréfaútgáfan nú er ekki aðeins mikilvæg fyrir okkur og viðskiptavini okkar heldur einnig fyrir efnahagslífið hér á landi, þar sem aðgengi erlendu lánsfé á hagstæðum kjörum skiptir miklu fyrir áframhaldandi uppbyggingu.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira