24.11.2015

Arion banki gef­ur út skulda­bréf í norsk­um krón­um

Í gær, mánudaginn 23. nóvember, lauk Arion banki skuldabréfaútgáfu í norskum krónum. Samtals voru gefin út skuldabréf fyrir 300 milljónir norskra króna, eða sem jafngildir um 4,6 milljörðum króna, til tæplega fimm ára.

Um er að ræða viðbót við skuldabréfaútgáfu bankans frá því í júní á þessu ári. Brefin, sem bera NIBOR vexti að viðbættu 2,95% vaxtaálagi, voru seld á kjörum sem samsvara NIBOR vöxtum með 2,80% álagi. Umframeftirspurn var eftir skuldabréfunum sem seld voru til fjárfesta í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og á meginlandi Evrópu. Pareto Securities sá um sölu skuldbréfanna.

Samhliða skuldabréfaútgáfunni keypti Arion banki til baka NOK 75 milljónir af skuldabréfaútgáfu frá árinu 2013. Arion banki hafði áður keypt 319 milljónir og hefur bankinn samtals keypt NOK 394 milljónir tilbaka af NOK 500 milljón króna útgáfu frá árinu 2013.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira