02.05.2016

Arion banki hef­ur starf­semi á Kefla­vík­ur­flug­velli

Arion banki tók yfir alla bankaþjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gær. Þannig mun bankinn nú sinna þjónustu við komu- og brottfararfarþega í flugstöðinni og verður höfuðáhersla á gjaldeyrisþjónustu og þjónustu vegna endurgreiðslu virðisaukaskatts.

Arion banki verður með þrjár nýjar afgreiðslur og verða 13 hraðbankar staðsettir víðsvegar um flugstöðvarbygginguna, er þar um umtalsverða aukningu að ræða frá því sem verið hefur. Þjónustan verður hins vegar fyrst um sinn veitt í bráðabirgðaraðstöðu á tveimur stöðum í flugstöðinni á meðan afgreiðslur bankans verða settar upp. Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á þessu millibilsástandi þar til nýjar afgreiðslur verða opnaðar 8. maí næstkomandi.

Arion banki mun veita þjónustu allan sólarhringinn á háannatíma ársins, það er yfir sumartímann og fram í október, og munu þá um 60 starfsmenn sinna þjónustunni. Meðal þeirra er fyrrum starfsfólk Landsbankans sem sinnt hefur bankaþjónustu á Keflavíkurflugvelli undanfarin ár, en Arion banki réð til starfa alla úr þeim hópi sem sóttust eftir því að sinna áfram þjónustu í flugstöðinni.

Farþegaspá fyrir árið 2016 áætlar að 6,7 milljónir farþega muni fara um Keflavíkurflugvöll og ef hún gengur eftir er það fjölgun um 37% milli ára. Gera má ráð fyrir því að hátt í hálf milljón farþega á ári muni nýta sér þá þjónustu sem Arion banki býður á Keflavíkurflugvelli.

Meðfylgjandi eru annars vegar myndir af Flugstöð Leifs Eiríkssonar og hins vegar af Smáraútibúi Arion banka og útibúi Arion banka Borgartúni 18.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira